Fréttablaðið - 25.09.2008, Qupperneq 78
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Ólafs Sindra
Ólafssonar
Sumar stéttir blómstra á kreppu-tímum. Sparnaðarráðgjafar
eru ein þeirra. Smjör drýpur af
hverju strái í húsakynnum þeirra
þessa dagana þar sem prólarnir
flykkjast að, ólmir í að fá að borga
fyrir að meðtaka fagnaðarerindið
um að eyða ekki um efni fram. Ég
er aumingjagóður maður og þykir
skemmtilegt að hjálpa lítilmagn-
anum. Þess vegna hef ég ákveðið
að birta hér örfá vel valin hollráð
úr væntanlegri bók minni, Sjálfs-
hjálparbók handa blankri þjóð:
1. Þarftu að láta taka myndir af
fjölskyldunni fyrir jólin? Það er
óþarfi að borga stórfé fyrir
myndatöku og prentun. Vertu vak-
andi fyrir fjöldasamkomum eða
stórviðburðum og dragðu svo fjöl-
skylduna á staðinn. Það er nokk-
urn veginn öruggt að þar verða
staddir atvinnuljósmyndarar og
hægur leikur er að troða sér fram-
arlega og tryggja að fjölskyldan
festist á mynd. Dagblöðin sjá svo
um prentun og fjölföldun og það
eina sem þú þarft að gera er að
klippa myndirnar út og líma í
ókeypis jólakortin sem þú varðst
þér úti um með ráðum síðasta
kafla [sjá bók].
2. Flækingskettir þurfa ekki að
vera vandamál. Jafnvel á ketti af
allra smæstu tegund finnst nægi-
legur matur í fínustu sunnudags-
steik fyrir meðalfjölskyldu. Í
kaupbæti fylgir ágætis feldur,
sem kemur sér vel þegar þú fylgir
ráðum 7. kafla [sjá bók] og lokar
fyrir heita vatnið. Í þokkabót ertu
að leggja þitt af mörkum til að
stuðla að hreinni og fegurri borg.
3. Lífið snýst um fleira en að tóra.
Jafnvel mestu sparnaðarforkólfar
þurfa að gera sér dagamun endr-
um og eins. Sniðugt er að taka að
sér fatlaðan einstakling í liðveislu.
Þú ert ekki einvörðungu að fá
ferðir á kaffihús og ýmsa viðburði
fríar, heldur færðu borgað fyrir
viðvikið að auki! Tilfinningin sem
fylgir því að gera góðverk er svo
algjör bónus og hana ásamt félags-
skapnum er hægt að gera út á í rit-
störfum (sjá kafla 13 - Bloggað til
fjár).
EINS og sjá má úir og grúir af
ómetanlegum sparnaðarráðum í
þessari ómissandi bók minni. Ekki
láta gírugu sparnaðarráðgjafana
hafa af þér fé í staðinn fyrir
kommon sens ráð sem allir geta
sagt sér sjálfir. Pantaðu frekar
Sjálfshjálparbók handa blankri
þjóð. Ef þú forpantar strax í dag
læt ég fylgja með bæklinginn
Hvernig skal nýta sér örvæntingu
fólks á krepputímum – algjörlega
frítt!
Sparnaðarráð
Í dag er fimmtudagurinn
25. september, 269. dagur ársins.
7.20 13.19 19.17
7.05 13.07 19.01
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Engin
útborgun!
Frábær símatilboð há Vodafone. Þú borgar ekkert út
og afborganir dreifast á 12 mánuði á kreditkort. Auk
þess færðu mánaðarlega inneign í heilt ár.
Lifðu núna
*Gildir um gagnaflutninga innanlands.
Sony Ericsson W890i
• Afborgun 4.000 kr. á mánuði í 1 ár
• 2.000 kr. inneign á mánuði í 1 ár
• 500 MB niðurhal á mánuði í 1 ár*
0 kr. út
Nokia 1680
• Afborgun 1.000 kr. á mánuði í 1 ár
• 1.000 kr. inneign á mánuði í 1 ár
0 kr. út
Nokia E51
• Afborgun 3.000 kr. á mánuði í 1 ár
• 500 MB niðurhal á mánuði í 1 ár*
0 kr. út
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Svefnpokapláss
kr. 1.500 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is