Réttur - 01.02.1927, Side 2
4 GEORGE BERNHARD SHAW [Rjettur
í þann búning, sem flestir hafa í fyrstu talið skrípi-
gerfi. Nú er svo komið, að frá því að Anatole France
leið, mun hann hafa meiri áheyrn og athygli hinna
skynbærari manna, en nokkur annar rithöfundur í
Norðurálfunni.
George Bernhard Shaw er fæddur í Dyblinni á ír-
landi 26. júlí 1856. Hann er því nú maður rúmlega sjö-
tugur. Foreldrar hans voru írsk að ætterni, en mótmæl-
endatrúar. Faðir hans virðist ekki hafa verið mikill mað-
ur fyrir sér. Hann starfaði lengi sem réttarritari, fékk
eftirlaun, er hann hætti því verki, kom eftirlaunarétt-
inum í ákveðna fjárupphæð í eitt skifti fyrir öll og
gerðist kornsali. Jafnan var hann fátækur maður.
Raunar er sagt, að tekjur hans hefðu átt að nægja til
þess að framfleyta fjölskyldu, með nokkurri aðgæzlu
og sparsemi, en Shaw hinum eldra fanst hann ekki vera
almúgamaður, sökum þess, að hann átti skyldmenni, er
báru aðalsnöfn. Tilhneigingar hans til íburðar voru
þess eðlis, að ef til vill hefði mátt fullnægja þeim. með
fjórfalt meiri tekjum. Fyrir þessa sök var fjölskyldan
jafnan félaus, þótt ekki liðí hún verulegan skort. Bern-
hard var yngstur barna. Tvær átti hann systur. Agnes
og Lucy. Hin síðarnefnda varð söngkona og rithöf-
undur.
Móður G. B. S. er svo lýst, að hún hafi verið mikilhæf
kona. Hún var tuttugu árum yngri en maður hennar,
gáfuð, kappsöm, með öllu laus við alla hleypidóma
manna, er af sönuu stétt voru og hún sjálf, lét sér al-
mennings álit engu skifta, en fór sínu fram í trausti
sinnar eigin dómgreindar á því, hvað rétt væri og hent-
ugt. Hamon, franskur rithöfundur, -lýsir henni svo í á-
gætri bók, er hann hefir ritað um Shaw, að hún hafi
verið — fyrir fimtíu árum síðan — nákvæmlega eins
og þær konur, sem nú séu lengst kominar að skilningi.
Ekki þótti hún mikil húsmóðir, enda var hugurinn mik-
ið bundinn við hljómlist, því að hún hafði fagra rödd og