Réttur - 01.02.1927, Blaðsíða 12
14 GEORGE BERNHARD SHAW [Rjettur
»Þessi opinberun hafði mikil áhrif á mig. í fyrstu datt
mér 1 hug, að eg gæti lifað á því að selja rit mín þess-
um tíunda hluta, sem var eins og eg. En eg sá jafn-
skjótt, að þeir hlutu allir að vera eins félausir eins og
eg....En spurningin var,, hvernig átti eg að afla dag-
legs brauð með pennanum. Hefði eg verið praktiskur,
féunnandi Englendingur með heilbrigða skynsemi, þá
hefði vandinn ekki verið svo mikill: Eg hefði sett á mig
gleraugu, sem hefðu skekt sjón mína, svo eg hefði séð
eins og 90 af hundraði, væntanlegra bókakaupenda. En
eg var svo frábærlega hreykinn af ágæti mínu. að
mér kom þetta aldrei til hugar. Eg vildi heldur sjá rétt
og hafa pund á viku, heldur en grilla í hlutina og eiga
miljón pund. En spurningin var, hvernig átti eg að ná
í pundið á viku.«
Shaw hefir vissulega heppnast að ná í þetta pund á
viku fyrir daglegu brauði. Hann er nú auðugur maður.
Leikrit hans eru sýnd í öllum menningarlöndum. Hann
hefir knúð menn til þess að taka eftir orðum sínum
fyrir hvorutveggja ástæðurnar: frábærlega hæfileika
til þess að skrifa læsilega — óstöðvandi mælsku, gam-
ansemi, rökfimi og skýrleik — og óvenjulegan frum-
leika, semi ávalt er sjálfum sér samjkvæmur. Sumum
mönnum finst hann skifta um ham á svipstundu og
breyta iðulega um skoðanir, en það stafar ekki af öðru
en því, eins og Chesterton segir, sem er Shaw ólíkur að
öllu nema andríki og alvöru, að hann er svo vopnfim!-
ur, að mönnum virðast mörg sverð á lofti í einu. Hann
sér svo margar hliðar á sama málinu og læðst á það,
sem honum er andstætt, frá öllum; hliðum í einu, svo að
segja.
Bernhard Shaw hefir ritað um 30 leikrit. Eins og
öllum má ljóst vera, þá er ekki nokkur kostur að segja
frá efni þeirra í þessu stutta máli. Allra síst þegar þess
er gætt, að í hverju leikriti er stráð hugmyndum af svo
miklu örlæti að lesa verður sumi þeirra oft og mörgum