Réttur - 01.02.1927, Blaðsíða 35
Rjettur]
FRA ÓBYGÐUM
37
an stallann. Þessa jökla nefndi ég Þorvaldsjökul, þann
nyrðri, en ögmundarjökul hinn syðri, til minja um það, að
fyrir 25 árum (1898) endaði Þorvaldur Thoroddsen fjalla-
ferðir sínar hér á þessum slóðum. Þótti mér því hlýða, að
þeir Ögmundur Sigurðsson ættu sér minnisvarða saman
hér á fjöllunum.
Langjökull er miklu iægri en Eiríksjökull eða á að giska
1400 metra yfir sæ (Th.). Norðurhluti hans er breið bunga,
er Balljökull heitir. Hvergi sér berg í bungu þessari, en
undir henni er snarbrattur móbergsstalli, líkur stalla Ei-
ríksjökuls, en nokkru lægri.
Norður frá Flosaskarði*verður mikið vik milli Eiríksjök-
uls og Langjökuls. Heitir það Jökulkrókur og í því miðju
er Þrístapafelt, lágur móbergshryggur. Niður í Jökulkrók
ganga miklir skriðjöklar frá Langjökli: Niður í Flosaskarð
norðanvert gengur Flosajökull (Th.). Norður af honum er
há og brött hlíð. Ganga litlir skriðjöklar niður í hana, en
norðan við hlíðina verður mikil lægð milli hennar og Hall-
jökuls. Niður um lægðina gengur geysimikill skriðjökull.-
Þennan jökul nefndi Þorvaldur Thoroddsen Þrístapajökul,
líklega eftir Þrístapafelli. Nafnið er ekki gott. Væri betra
að kalla hann Hallmundarjökul, því að hann gengur út á
Hallmundarhraun. Niður í stalla Balljökúls skerast engir
skriðjöklar norðar, svo að séð verði.
Eins og áður er sagt, gengur mikil lægð vestur frá Lang-
jökli, og nær hún norður að Arnarvatiishæðiim.. Um lægð-
ina norðanverða hefir Hallmundarhraun runnið. Upptök
þess eru undir stalla Balljökuls, norður frá Jokulkrók. Þor-
valdur Thoroddsen segir, að þau séu ;>gigabrúgaklur mik-
ið« (Ferðabók IV. bd., bls. 84), en á jarðfræðiskortinu
sýnir hann þau sem gígaröð. Af Svartarhæð sjást upptök-
in vel í sjónauka. Eru þau ekki nema einn hraungígur mik-
ill. Þaðan hefir hraunið runnið uin allan Jökulkrók og norð-
ur ineð jöklinum alt norður undir Arnarvatnshæöir. Aðal-
straumurinn hefir lagst vestur meö Eiríksjökli og suður