Réttur - 01.02.1927, Blaðsíða 36
38
PRÁ ÓBYGÐUM
[Rjettur
milli hans og Strúts, en kvísl ar henni aftur norðan við
Strút, eins og áður er sagt.
Or skriðjöklum þeim, sem taldir hafa verið, hlýtur að
koma mikið vatn, en hvergi sér læk í hrauninu. Hiýtur
því vatnið að renna undir hrauni og kemur það ekki fram
fyr en í Barnafossgljúfri og er þá tært.
Skamt norðan við norðurenda Langjökuls er hátt íell,
sem sést víða að. Á uppdrætti Björns Gunnlaugssonar er
það nefnt »Krákr eða Lyklafell«. Þorvaldur Thoroddsen
nefnir það Lyklafell, en Krák kallar hann lágt fell, sem
liggur í vestur frá þessu felli, en i norðaustur frá Arnar-
vatni. Þessa breytingu mun ham hafa gert 1898, að lík-
indunr eftir sögusögn fylgdarmanns síns, Jóns bónda Páls-
sonar í Fljótstungu, því að þar sem hann lýsir ferðum sín-
um á Kiii árið 1888 segir: »Norður af Þjófadölum eru fram
með Langjökli fjöll með skörðuin og giljum, sem ganga
norður undir Krák á Sandi« (Ferðabók II. bd., bls 196).
Virðist hann frernur eiga hér við fell það, er hann nefnir
síðar Lyklafell, en hitt, sem hann kallar Krák. Er hér, sem
oftar, mótsögn í iýsingum Þorvaldar.
Eftir því sem ég veit best, er þessi nafnabreyting röng.
Flestir Húnvetningar og Skagfirðingar, sem kunnugir eru
á fjölium, þekkja Krák á Sandi, og man ég, að á unga aldri
var mér sagt, að það væri fellið, senr Þorvaldur kallar
Lyklafell.
Nafnið bendir og á, að þetta sé réttara. Krákur merkir
hrafn. Mun þeim, sem gaf nafnið, hafa virst fjallið líkjast
hrafni að lögun, lit eða hætti. Fell þetta er hæst að sunnan,
en iækkar til norðurs. Af Stórasandi er það ekki óáþekt
hrafni, sem horft er aftan á. Er það og æði dökkleitt að sjá
við ísbjarmann yfir Langjökli. Sá er háttur hrafna að sitja
hátt, á 'hömrum eða bustum, en fellið er á Sandi, þar sem
hann er hæstur, og haflar frá því á alla vegu. Til er gömul
vísa, sem byrjar svona: »Krákur Sandi situr á«. Gæti hún
bent á, að nafnið sé dregið af þessu. Hitt fellið, sem Þor-
valdur kallar Krák, er lágur móbergshryggur sunnan við