Réttur - 01.02.1927, Blaðsíða 70
Baráttan um heimsyfirráðin.
Byltingin í Kína.
Framsókn Kantonhersins. — Verklýðsuppreisn í Shanghai.
— Sigur byltingarhersins. — Klofning byltingarstjettanna.
— Uppreisn Tschang-Kai-Sheks.
Lesendum »Rjettar« mun kunnugt um skiftingu þá, er
átti sjer stað í Kína milli afturhalds og byltingar, því
greinilega var frá því sagt í kaflanum um Kína (9. ár, bls.
67—71 og spáð að sigur alþýðunnar þar kynni aö vera
nær en menn hjeldu.
Nú hafa þau tíðindi gerst í Kína, er mesta eftirtekt hafa
vakið út um allan heim, og eru einhver hin mikilvægustu,
er mannkynssagan getur um. Skal nú reynt að skýra dá-
lítið. frá því, þótt erfitt sje að ná saman heimildum til að
gefa gott yfirlit.
Þar er þá fyrst frá að segja, að eftir dauða Snn-Yat-
Sens, alþýðuforingjans mikla 1924, virtist um tíma dofna
yfir Kantonstjórninni og varð fyrst framan af árinu 1926
tíðindalítið þar eystra. Undirbjó þá byltingarstjórnin í
Kanton framsókn hers síns og Kuo-Min-Tang-flokkurinn
(alþýðuflokkurinn kínverski) og kommúnistaflokkurinn
breiddu út kenningar sínar um gjörvalt Kína, senr mest
þeir máttu; Tafði þó fleira starf stjórnarinnar en undir-
búningur sá og munu þar meiru hafa um valdiö deilur
þær, er risu innan flokksins milli hægri og vinstri arms-
ins. Stóð borgarastjettin kínverska mestmegnis bak við
hægri arminn, en alþýðustjettirnar, bændur og verkamenn,