Réttur - 01.02.1927, Side 80
82 BARÁTTAN UM HElMSYFIRRÁÐIN [Rjettur
iðnaðarþróun. Eru þar aðeins 350,000 iðnaðarverkamenn,
en 9 miljónir landbúnaðarverkamanna.
í Argentínu er ástand líkast því sem tíðkast í Norður-
álfu. Eru þar tveir borgaraflokkar, annar stórbændaflokk-
ur (Irigoyen), en hinn stórborgaraflokkur (Alvear). Tveir
alþýðuflokkar eru þar einnig; hafði jafnaðarmannaflokkur
verið þar í 36 ár og klofnaði 1917 í sosialdemokrataflokk,
er sveigir mjög til smáborgara, og kommúnistaflokk, sem
hefur aðalfylgi meðal verkalýðsins. Kreppa er nú rnikil í
landinu, sökum þess að nokkur hluti iðnaðarins er lamað-
ur og innflutningur erlendra verkamanna afarmikill. —
Mjög virðist nú fara vaxandi skilningur alþýðunnar í
öllum þessum löndum á því að hagsmunir hennar sjeu
sameiginlegir. Hafa hinir róttækari flokkar Suður-Ameríku
myndað með sjer samtök gegn yfirgangi Bandaríkjanna
og kalla þau A. P. R. A. (Alianza Popular I^evolucionaria
Ameríkana: Lýðbyltingarsamband Ameríku). Hefur sam-
band það á stefnuskrá sinni: 1) Samvinnu landanna gegn
Bandaríkjunum, 2) Stjórnmálasamband ríkja latnesku
Ameríku (Suöur- og Mið-Ameríku, 3) Þjóðnýting lands
og iðnaðar, 4) Alþjóðaeignarrjett á Panamaskurðinum,
5) Samvinnu við allar kúgaðar þjóðir og kúgaðar stjettir
heimsins. .
Og samvinna sú, er síöast getur um er þegar hafin. í
Briissel í Belgíu mættu i febrúar 1927 fulltrúar flestallra
þjóðernis- og fjölmargra verklýðsflokka heimsins og stofn-
uðu alheimssamband gegn yfirdrotnun stórveldanna (im-
perialismanum). Eru í stjórn þess: Nehru (Indland). Liaii
(Kína), Sengher (Afríka),Mohamed Hatta (Indlandseyj-
ar), Lansbury (Bretland), Ugarte (Suður-Ameríku),
Munzenberg (Þýskaland), Fimmen (Holland),og Marteux
(Belgíu). Gaf fundur þessi út ávarp til allra kúgaðra
stjetta og þjóða heims og lauk því svo:
»Alstaðar sjáum við söniu myndina, annarsvegar tugir
og hundruð miljóna, sem þrá sjálfstæði og frelsi, en liins-
vegar lítill en voldugur hópur drotnara, sem reyna að