Réttur - 01.02.1927, Page 83
Rjettur] BARÁTTAN UM HEIMSYFIRRAÐIN 85
til þeirra, er orðið hafa fyrir vandræðum af hálfu verk-
lýðsfjelaga, áður en lögin gengu í gildi. (Verndun verk-
fallsbrjóta, líka frá fyrri árum og sektardómar á verlýðs-
sjóðina.).
Það er bannað með lögum að reyna að fá menn til að
hætta vinnu, ef það er reynt á þann hátt, að sá, sem reynt
er við, hefði einhverja ástæðu til aö óttast um sig. Það er
bannað aö krefjast fjárframlaga til stjórnmálasjóða verka-
lýðsins af meðlimi verklýðsfjelags, nema hann hafi skrif-
lega samþykt það. (Tilraun til að eyðileggja verklýðs-
flokkinn fjárhagslega). Starfsmenn hins opinbera mega
aðeins vera í verklýðsfjelögum, sem eingöngu eru skipuð
starfsmönnum hins opinbera og eru í öllu óháð og ekki
bundin neinum pólitískum flokk. (Síðan fleiri ákvæði, sem
takinarka notkun fjár verklýðssaintakanna o. s. frv., alt í
þeim tilgangi að hindra hina politísku starfsemi þeirra).
Það er af þessu auðsjeð hvað hjer er um að vera. Að
banna manni með lögum að leggja niðar vinnu sina er að
gera hann að þræl. Að leggja refsingar við því að hætta
vinnu, er að gera verkalýðinn að þrælastjett og fram-
kvæind mannrjettinda hans að glæp. Lög þessi eru því
svo ógurlegt brot á öllum þeiin hugmyndum, sem ríkt hafa
um mannrjettindi síðan frönsku byltinguna leið, að flest-
um mun þykja furðu sæta, ef það væri ekki auðsjeð að
þetta er í fullu samræmi við þróun auðvaldsskipulagsins
og hnignun þess. Með þróun hringanna hafa og verklýðs-
samtökin magnast, og þegar auðvaldsskipulaginu tekur
svo að hnigna, sein nú er raun á orðin í Englandi, þjapp-
ast verkalýðurinn svo vel saman, að auðvaldið sjer engin
ráð til að rjúfa samtök hans, nema takmarka þau og næst-
um banna með lögum. Er þá stjettakúgunin komin á hæsta
stig, þegar verkalýðurinn á að verða þræll allrar yfirstjett-
arinnar án frelsis til að hreyfa sig öðru vísi en henni þókn-
ast, og hafa sjerstök lög, er aðeins gilda um hegðun hans.
Afleiðing af framkvæmd slikra Iaga er eyðilegging
verklýðsfjelagsskaparins sem heildar. Samhjálp verka-