Réttur - 01.01.1953, Page 56
56
RÉTTUR
Ukrainu og Norður-Kákasus, en skila þó meiri uppskeru. í stað
þess verður ræktun sykurrófna og baðmullar í þessum héruðum
aukin mjög.
Einna stórkostlegastar eru ræktunarframkvæmdirnar í Turk-
meníu. Geysistór skurður flytur mikið af vatnsmagni Amu-darju
árinnar yfir Karakúm-eyðimörkina og alla leið vestur í Kaspíu-
haf. Skurðurinn er bæði flutningaleið og áveitulind og mikil
orkuver verða reist þar til að knýja baðmullar- og baðmolíu-
verksmiðjur.
Nú sem stendur eru 80% Turkmeníu eyðimörk, en ræktaða landið
rúmir 400 þúsund ha. En með áveitunum munu bætast við
meira en 8 millj. ha. af ræktarlandi, sem gefur meiri baðmullar-
uppskeru en Egyptaland. Auk þess verða ræktaðir þarna allskyns
suðrænir ávextir, svo sem döðlur, fíkjur, vínber, olívur, granat-
epli. o. fl.
Lægðin, sem kennd er við Volgu. og Aktúkin og nær allt frá
Stalíngrad suður að Kaspíuhafi, hefur jafnan reynzt erfið til
ræktunar. Landssvæði þetta tekur yfir meira en 2 milljónir ha.,
að meðtöldum óshólmum Volgu, og jarðvegurinn er mjög frjósam-
ur. En mestur hluti þess hefur legið undir vatni í vorflóðunum og
ekki verið orðinn þurr fyrr en í júní eða júlí, svo að ræktunartím-
inn varð mjög stuttur. Nú verður með öllu girt fyrir þessi flóð.
Gróðurmagn jarðvegsins mun njóta sín til fulls, og auk korns
verða nú ræktaðar þarna sykurrófur, hrísgrjón, melónur og alls-
konar aldin.
Á gresjunum norðan og vestan Kaspíuhafsins hefur jafnan verið
stunduð kvikfjárrækt. Þarna eru mikil beitilönd, en fóðurtekjan
hefur verið ótrygg, og einkum hefur skort vatnsból fyrir fénaðinn.
Með áveitukerfunum verður úr þessu bætt. Kvikfjárræktin mun
margfaldast, auk þess sem komið verður á akuryrkju á tak-
mörkuðum svæðum.
Þess er svo loks að geta, að áveituframkvæmdirnar munu færa
Ráðstjórnarríkjunum landauka með öðrum hætti en þegar er
greint. Vatnsborð Kaspíuhafs hefur farið lækkandi siðustu ald-
imar. Áveiturnar munu ýta mjög undir þá þróun — og ný lönd
og frjósöm munu risa „úr sæ“ bæði þar og í Aralvatni.
Skipaskurðir og samgöngur.
Ein hliðin á framkvæmdum þessum snýr að samgöngunum og
er harla mikilsverð. Er þá fyrst að nefna Volgu- Don skipaskurð-