Réttur - 01.07.1930, Blaðsíða 17
Rjettur]
STRAUMHVÖRF
233
dæma víxlana ógilda og setja falsarann í fangelsi,
dæmir franski rjetturinn falsarann sýknan og víxlana
gilda og knýr verslunarsendiráð RB í París til að
greiða þá. í Berlín falsar glæpamannahópur sovjet-
rússneska peninga. Glæpamennirnir eru sýknaðir. —
Almennir borgaralegir glæpir eru látnir viðgangast i
auðvaldslöndunum til að vinna tilvonandi hernaðar-
andstæðing sínum tjón. Sömu aðferðinni var beitt í enn
stærri stíl, þegar tekin var einkasala á eldöpýtum í
Þýskalandi og fengin í hendur sænska eldspýtna-
hringnum, til að útiloka rússnesku eldspýturnar, sem
áður voru seldar þar mjög ódýrt. Baráttan fyrir að
veikja RB fjárhagslega er því nú þegar á háu stigi.
Þá er hinn pólitiski undirbúningur. Hernaðarsinn-
arnir hafa úti allar klær, til að koma þeim flokkum að
völdum, sem þeim verða þægastir. Er þá öllum brögð-
um beitt. Gott dæmi er Afghanistan, þar sem breska
hervaldið kemur af stað uppreisn í landinu til að fá þá
menn til valda, sem verða þeim auðsveipin verkfæri.
Sama sjest í Póllandi, þar sem hinum herskáa Rússa-
hatara Pilsudski er lyft í valdasessinn með aðstoð
Breta. Samskonar »undirbúningur« átti sjer stað í
Jugoslavíu, er konungurinn hrifsaði til sín alræði þar,
og í Mexiko, sem áður var hlynt RB, en hefur nú fyrir
tilverknað Bandaríkjanna slitið stjórnmálasambandi
við það. Og valdanám Carlos í Rúmeníu miðar að því
sama.
Samskonar hernaðarundirbúningur endurtekur sig
nieð valdaráni hervaldssinna í Finnlandi og þeirri blóð-
ugu kúgun, sem þar er beitt við kommúnista og allan
verkalýð.
Það að bæla niður með löghelguðu ofbeldi og löghelg-
aðri grimd verklýðshreyfingu Mið-Evrópu er einnig
iiður í undirbúningnum undir árásarstríð á RB.
»Lög til verndunar lýðveldinu« í Þýskalandi, sem
sosialdemokratarnir komu í gegn til að geta bannað
lb