Réttur - 01.07.1930, Blaðsíða 15
Ujettu)]
STRAUMHVÖRF
231
lands, jafnhliða sem innbyrðis baráttan milli hinna
ýmsu auðvaldsríkja vex.
Alt sem auðvaldið gerir til þess að losna úr krepp-
unni, verður því til að flækja það ennþá ægilegar í net
þeirra mótsagna, sem óhjákvæmilega fylgja skipulags-
leysi þess, — og um leið magna þá krafta, sem grafa
því gröf.
En því meir sem auðvaldið dregst nær stórvelda-
stríði og stjettastríði, sökum heimskreppunnar, því
meira sameinast allar tilraunir þess til að draga úr
kreppunni í þá einu tilraun: að brjóta RB á bak aftur
með styrjöld.
Rökin, sem knýja auðvaldið til þessa stríðs gegn
ráðstjórnarríkjunum eru auðsæ.
í fyrsta lagi er framkvæmd 5 ára áætlunarinnar,
hinn geysilegi viðgangur iðnaðarins á öllum sviðum í
RB, — svo skerandi mótsetning við kreppuna og hnign-
unina í auðvaldsríkjunum, að það fer ekki hjá því að
þetta hafi afskapleg áhrif á hugi verkalýðsins um heim
allan, og það sem auðvaldsríkin óttast ennþá meir: ef
þessu heldur áfram verða RB nýtt stórkostlegt iðnað-
arvald, sem með tímanum eyðileggur þá í samkepninni,
ef þejr ekki kæfa það, þegar í byrjun.
f öðru lagi álíta þeir RB rjettilega miðdepil bylting-
arhreyfingar heimsins, sem með tilveru sinni einni
saman magnar baráttu verkalýðs og nýlenduþjóða um
heim allan. Auðvaldið ynni því hið þarfasta verk fyrir
sjálft sig, til að drepaniður verklýðshreyfinguna heima
fyrir og nýlenduuppreisnar erlendis, ef það fengi kom-
ið RB á knje.
í þriðja lagi sjer auðvaldið að rússneski markaður-
mn er einmitt markaðurinn, sem það vantar. En nú er
Þeim stíað frá honum með ríkisrekstri utanríkisversl-
unarinnar og verkalýðs- og bændastjórninni.
Og haldi kommúnistastjórnin rússneska áfram stór-
virki því, að gera Rússland að iðnaðarríki, — sem hún