Réttur


Réttur - 01.01.1933, Side 3

Réttur - 01.01.1933, Side 3
skipulagsins, öreigabyltinguna og alræði öreiganna. Nú er því ekki lengur til að dreifa. Hver, sem vill hafa opin augun, getur nú sannfærzt af reynzl- unni sjálfri. Sósíalisminn er nú þegar í framkvæmd á sjötta hluta þurrlendis jarðarinnar. I>að er þegar búið að leggja órjúfanlegan grundvöll að framtíðar- skipulagi kommúnismans í landi með 165 milljónir íbúa. Nú mætti eins vel efast um, að hægt væri að búa til flugvélar eða að senda loftskeyti milli landa, eins og það, að sósíalisminn sé framkvæmanlegur. Þegar svo er komið að jafnvel mörg helztu stórblöð auðvaldsins víða um heim (reyndar að undenteknum flestöllum kratablöðum heimsins, sem í sínu stjórn- lausa hatri til rússneska verkalýðsins ganga, ef unnt er, ennþá lengra en sjálfir húsbændur þeirra, kapítalistamir) — þegar svo er komið, að ýms að- alblöð burgeisanna viðurkenna, að 5 ára áætlunin hafi heppnazt að fullu, að í Sovétríkjunum hafi tek- izt að útrýma atvinnuleysinu, að þar sé allur þjóð- arbúskapurinn á hraðari framför en dæmi séu til á nokkrum öðrum stað eða tíma o. s. frv., þá ætti það eitt að nægja til þess að sýna, að hér er ekki um neinar skrumfregnir kommúnista að ræða. Það er ekkert aðalatriði í þessu sambandi, að borgurunum gengur ekki sanngirnin til, er þeir viðurkenna þetta, heldur óttinn við það, að Sovétríkin séu að verða þeim yfirsterkari og sú skoðun, að vissara sé að vanmeta ekki styrkleika fjenda sinna. Hlutverk 5 ára áætlunarinnar. Hlutverk 5 ára áætlunarinnar var það, að leggja grundvöllinn að skipulagi sósíalismans í Sovétríkjun- um. Þetta hlutverk var ekki hægt að færast í fang fyrr en gert var. Fyrstu árin eftir byltinguna geisaði borg- arastyrjöldin yfir landið. AUt lagðist í rústir, og öllum kröftum varð að einbeita til þess að reka hina erlendu innrásarheri af höndum sér. Þetta er nefnt tímabil 3

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.