Réttur - 01.01.1933, Qupperneq 8
ber sig ekki fyllilega enn sem komið er, og verða
þau því að njóta ríkisstyrks fyrst um sinn, en við öðru:
er heldur ekki að búast um kornung risafyrirtæki,
því að feikna-mikið fé hefir verið lagt í þau í vélum,.
byggingum og öðru. Þessi eðlilega staðreynd en
óspart notuð af fjendum Sovétríkjanna til þess að
reyna að sýna fram á, að íandbúnaður Rússa sé að
fara út um þúfur. En það er nú þegar engum vafa
bundið, að öll þessi fyrirtæki verða farin að borga
sig fullvel að örfáum árum liðnum, og fjölmörg-
þeirra eru þegar farin að gefa mikinn arð. Og í með-
vitund alls þorra rússneskra bænda er samyrkjan nú
það búskaparlag, sem er lang-arðvænlegast.
Utrýming yfirstéttanna.
Það má segja, að 5-ára-áætlunin hafi gerbreytt
Jandi og þjóðum Sovétríkjanna. Tugir nýrra stór-
borga hafa risið upp, þúsundir verksmiðja, náma og
aflstöðva og hundruð þúsunda samyrkju- og sovét-
búa setja nú svip sinn á hinar endalausu flatneskj-
ur Rússlands. En því fer fjarri, að það sé einungis
svipur landsins, sem breytzt hefir, að breytingin sé
aðeins fólgin í hinni dæmalausu eflingu iðnaðar og
landbúnaðar. Fólkið hefir líka breytzt, lífskjör fólks-
ins, hugsunarháttur þess og viðhorf til lífsins. Allt
þjóðlífið hefir tekið stórkostlegum stakkaskiptum.
Arðránsstéttunum gömlu hefir verið útrýmt því nær
að fullu, enda þótt áhrifa þeirra gæti enn í svika-
vinnu, skemmdastarfsemi og á öðrum sviðum, þar
sem þær geta neytt fjandskapar síns við nýja skipu-
lagið. Vísindi og andleg menning hafa tekið stórfelld-
ari framförum en dæmi eru til á jafn-skömmum tíma.
Bætt lífskjör alþýðunnar.
Enda þótt 5-ára-áætlunin hafi fyrst og fremst sett
sér það mark að leggja grundvöllinn að því að geta
fulnægt öllum daglegum þörfum rússnesku alþýðunn-
8