Réttur


Réttur - 01.01.1933, Síða 58

Réttur - 01.01.1933, Síða 58
FRAflfl TIL BARATTU GEGN FASISflfl ANUflfl! TIL ÍSLENZKRA VERKAMANNA, TIL ALLRA ANDSTÆÐINGA FASISTA Á ÍSLANDI. 14. og 15. apríl hafa 386 verkamannafulltrúar, sósíaldemókrat- ar, kommúnistar og flokksleysingjar, sem kosnir voru af ca. 60 j)ús. verkamanna á öllum NorSurlöndum, setiS ráðstefnu í Kaup- mannahöfn til aS ræSa hina geigvænlegu fasistahættu og' koma sér . saman mn þær varnarráSstafanir, sem verkalýSurinn veröur að grípa til, svo að heftur verði vöxtur fasismans, er liefir afnám og tortímingu verklýðshreyfingarinnar á stefnuskrá sinni. RáSstefn- an samþykkti einum rómi að leggja allt kapp á það, að gera Norð- urlönd að brimbrjóti gegn fasismanum og safna öllum vinnandi mönnum í löndum þessum til baráttu gegn hvers kyns hræringum fasismans. I lok ráðstefnunnar var kosin föst framkvæmdanefnd, r sem skipuð er fulltrúum fyrir öll Norðurlönd, og skal liún hafa vakandi auga með þróun fasismans og sjá svo um, að samþykktir ráðstefnunnar standi ekki við orðin tóm, lieldur eggi allan vinnandi lýð Norðurlanda til að hefja þegar í staö virka baráttu gegn hinni alþjóðlegu fasistahættu, sem einnig er farin að gera vart við sig hér á Norðurlöndum. Þessi Norðurlandaráðstefna skoðar starfsemi : sína sem undanfara að heimsþingi því gegn fasismanum, sem verð- ur sennilega haldið hér í Kaupmannahöfn í júní byrju. Undirritaðir fulltrúar verkamanna á ráðstefnu þessari vilja með þessurn línum vekja athygli alls verkalýðs og' allra andstæð- inga fasismans á hinni alþjóðlegu fasistahættu og skora á þá að láta ekki sitt eftir liggja í heimsbaráttunni gegn fasismanum og verja á þann hátt tilveru sína og stéttarbræðra sinna um allan heim. Öll íslen/.k verkalýðsblöð eru vinsamlegast beðin að birta þetta á- ■ varp. Alþjóðahreyfing verkalýðsins stendur nú á þýðingarmestu tíma- mótum sögu sinnar. Yiðburðir síðustu daga í Þýzkalandi liafa sýnt, að verkalýðurinn á um lífið að tefla, að stéttabaráttan er komin á það stig, er yfirráðastéttin svífist einskis til að halda völdunum, og hikar jafnvel ekki við að drekkja verklýðshreyfingunni í blóði, ef henni þurfa þykir. Hinn voldugi j)ýzki verkalýður, sem verið hefir áratugum saman stolt hinnar alþjóðlegu verklýðshreyfingar, liggur í blóði sínu undir böðulsöxi fasistanna, þessa trylta málaliðs auö- valdsins ])ýzka. Pólitískur félagsskapur verkalýðsins hefir að mestu leyti verið bannaður, blöð hans og tímarit eru bönnuð og gerð upp- 58

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.