Réttur


Réttur - 01.01.1967, Page 2

Réttur - 01.01.1967, Page 2
HVER BER ÁRYRGÐINA? HVAÐ ER ROTIÐ? Það hefur ekki verið hallæri frá náttúrunn- ar höndum né kreppa í viðskiptaveröldinni fyrir ísland undanfarin sjö ár. Þvert á móti. Láfið hefur leikið í lyndi við þjóðina. Nátt- úran verið gjöful. Tækni'bylting í sjávarútveg- inum tvöfaldað heildaraflann. Verðhækkanir verið ár frá ári á erlendum mörkuðum. Og þrátt fyrir nokkurt verðfall nú, er verðlag þó hærra en 1962 á flestum mörkuðum. Þjóðarframleiðslan hefur aukist ár frá ári. A verðlagi ársins 1965 var hún samanlagt á á árunum 1959—65, að báðum meðtöldum, 130 milljarðar ísl. króna. Á árinu 1966 mun hún á þess árs verðlagi vera um 24 milljarðar Í24.000 milljónir kr.), en gizkað á að þjóðar- framleiðslan verði 1967 um 26 milljarðar kr., það samsvarar um 137 þús. kr. á hvert manns- barn (miðað við 190 þús. íbúa) eða um 550 þús. kr. að meðaltali á 4 manna fjölskyldu. Og þegar þjóðarframleiðslan er svona stór- kostleg, ])á eru árslaun Dagsbrúnarverkamanns fyrir 44 stunda vinnuviku um það bil 114 þús. kr. Og þetta þykir stjórnarvöldunum svo hátt, 2 að þau biðja verkalýðshreyfinguna að hækka helzt ekki kaupið, svo efnahagslífið hrynji ekki til grunna! Sú stétt og þeir fulltrúar hennar, sem stjórn- að hafa landinu þennan tíma og því borið á- byrgð á því hvernig þetta eindæma góðæri hagnýttist þjóðarheildinni, hafa m. a. látið eftirfarandi atburði gerast, sem táknrænir eru fyrir stjórnarfarið: Bílaeign landsmanna hefur tvöfaldast á þess- um árum. Á árinu 1966 eru fluttir inn yfir 5000 bílar. Þeir kosta þjóðina með tollum og álagningu um 1000 milljónir króna (um einn milljarð). Utlend lán eru tekin til að leggja vegi, til þess að hlífa bröskurunum við skattlagningu. En auðvitað ekkert hlutfall milli vegabóta og bílainnflutnings. Á sama tíma fækkar togurum úr 53, sem þeir voru 1959, niður í 16 eða í liæsta lagi 22, sem telja má starfandi 1967. — Heim’skreppan fækkaði togurunum úr 47 árið 1928 niður í 37 árið 1935. Heimsstríðið kom þeim niður í 28 á árinu 1945, og það voru orðnir gamlir ryðkláfar. Stjórn viðreisnarinnar var stórvirk- ari í að granda togaraflotanum en vágestir þessir báðir. Fjárfestingin er á þessu skeiði milli 25 og 30% af þjóðarframleiðslunni árlega eða um 40 milljarðar króna á átta ára tímabili! En hún er óskipulögð, vanhugsuð og meira eða I

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.