Réttur


Réttur - 01.01.1967, Qupperneq 9

Réttur - 01.01.1967, Qupperneq 9
íslenzkt þjóöfélag er næsta einstætt fyrirbæri í veröldinni. Við erum örfámenn þjóð í víð- áttumiklu landi; íbúatalan jafngildir einu bæj- arhverfi í stórborg; það fjármagn sem þjóðin 'hefur árlega til umráða er fjarska lítið á mæli- kvarða stórþjóðanna; fyrir nokkrum árum veitti ég því athygli, að einn saman auglýsinga- kostnaður auðhringsins Unilever var ámóla hár og fjárlög íslenzka ríkisins. Samt höfum við sett okkur það mark að halda liér uppi þjóð- félagi sem staðizt geti í samkeppni við stóran heim, við viljum tryggja þegnunum lífskjör sem jafnist á við þau sem bezt gerast annars- staðar, halda hér uppi fjölþættu menningar- lífi sem beri keim af sjálfstæðu mati, lífsvið- horfum og dómgreind þeirrar þjóðar sem land- ið byggir. Við viljum halda órofnum tengsl- um við fortíð okkar og uppruna, varðveita dýrmætan menningararf, en vera engu að síð- ur virkir nútímamenn, þátttakendur í þeirri oru þróun sem mótar mannlífið umhverfis okkur. Við skulum horfa á það raunsæjum augum að þetta ætlunarverk okkar er ákáflega vandasamt, hver ný kynslóð verður að sanna 1 verki að hún rísi undir þessum kröfum. Vandinn heldur einnig áfram að aukast. Á þeim öldum þegar íslenzk menning mótaðist °g þróaðist, sá menningararfur sem fyrst og fremst er tengdur tungu og bókmenntum, var hændaþjóðfélag á íslandi. Uau andlegu ein- kenni sem gera okkur kleift að líta á okkur sem sérstæða menningarheild, lifðu öruggu hfi í skjóli bændasamfélagsins, þrátt fyrir stjórnarfarslegt ófrelsi. Á þeim tímum var fá- mennið engan veginn sama vandamálið í sam- anburði við aðra og það er núna. Ástæðan er su að í bændaþjóðfélagi er hver sveitabær næsta sjálfstæð efnahagsleg og menningarleg heild; menn öfluðu nauðsynja sinna mest- megnis sjálfir hver á sínum bæ, og þurftu á tiltölulega litlum viðskiptum að halda. í þjóð- félagi af slíku tagi er mannfjöldi ekkert meg- matriði, bændaþjóðfélag þarf ekki að vera neitt öflugra þótt sveitabseirnir skipti nokkr- um tugum eða hundruðum þúsunda, í stað nokkurra þúsunda eins og hér var; það sem úr sker er lífsþrótturinn og menningarstigið á hverjum bæ um sig. Það var þetta þjóðskipu- lag sveitanna sem tryggði íslenzkri menningu líf og þrólt öld eftir öld. Það er ævinlega lær- dómsríkl að rifja það upp, að þegar Rasmus Kristian Rask kom hingað til lands 1813, full- ur áhuga og aðdáunar á íslenzkri tungu, féll honum allur ketill í eld af fyrstu kynnum sín- um af Reykjavík. Hann skrifaði þá íslenzkum vini sínum: „Annars þér einlæglega að segja held ég að íslenzkan bráðum muni útaf deyja; reikna ég að varla muni nokkur skilja hana í Reykjavík að 100 árum liðnum, en varla nokkur í land- inu þar upp frá, ef allt fer eins og hingað til og ekki verða rammar skorður við reislar; jafnvel hjá beztu mönnum er annaðhvort orð á dönsku; hjá almúganum mun hún haldast lengst við.“ En þegar Rask tók að ferðast um landið áttaði hann sig fljótlega á þvi að það var ekki það danska þorp, Reykjavík, sem varðveitti sjálfstæða menningu þjóðarinnar, heldur sveitirnar; þar kvað hann málið vera „hreint og kröptugt." Það bændaþjóðfélag sem gat varðveitt dýr- mætan menningararf og skilað okkur honum, þrátt fyrir stjórnarfarslegt ófrelsi öld eftir öld, er ekki lengur til. Við höfum tekið þátt í þeirri öru jjróun frá bændaþjóðfélagi til iðnaðar- jjjóðfélags sem hefur verið að gerast allt um- hverfis okkur. Og við jmrfum að gera okkur skýra grein fyrir því að jjetta nýja þjóðfélag er alll annars eðlis en hið gamla. Hinar smáu og næsta sjálfstæðu einingar, sveitabæirnir, eru ekki lengur burðarstoðir efnahagslífs, menningar og siðmenningar, heldur er það einkenni iðnaðarjjjóðfélags að samfélagsheild- in tekur æ víðtækari forustu undir stjórn rík- isvaldsins. Hinn samfélagslegi þáttur þvílíkra iðnaðarljjjóðfélaga verður sífellt öflugri í öll- um löndum, hvernig svo sem 'hagkerfi jjeirra er háttað; þegnarnir leggja sameigin- lega fram fjármuni til menningarmála, kennslumála og vísinda, til félagsmála og 9

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.