Réttur


Réttur - 01.01.1967, Qupperneq 11

Réttur - 01.01.1967, Qupperneq 11
sjónarmiðum að stjórn atvinnumála og fjár- festingar, og nú um nokkurt skeið hafa ]rau sjónarmið verið yfirsterkari að stjórnleysi færi beztan árangur á þessum sviðum, hið ó- skipulega framtak, höpp og glöp. SKAMMSÝNI Ég held að þarna sé um að ræða skammsýni sem getur orðið Islendingum mjög afdrifa- rík, ef hún verður látin haldast. Þjóð sem ætl- ar að tryggja sér fullveldi til frambúðar á öllum sviðum verður að hafa öfluga og grósku- mikla innlenda atvinnuvegi; þar er urn að ræða undirstöðuatriði. Atvinnuvegirnir verða í senn að rísa undir lífskjörum, félagslegum framkvæmdum og margþættu menningarlífi; bregðist sú undirstaða mun öðrum verðmæt- um þegar í stað hraka. Því eru það hvorki aukaatriði né tilviljanir hvernig atvinnuveg- irnir, þróast, heldur meginatriði. Nú er sú kenning að vísu alkunn að atvinnuvegir þró- ist bezt samkvæmt sínum eigin lögmálum, eft- ir farvegi gróða og samkeppni, þar sem sá hæfasti verði að lokum ofan á og tryggi 'hag- kvæmastan rekstur, einnig fyrir þjóðarheild- ina. En jafnvel þótt menn trúi þeirri kenningu fær hún ekki staðizt við okkar litlu aðstæður. Hér á landi er enginn einkaaðili svo öflugur að hann geti af eigin ranrmleik ráðizt i nein- ar meiriháttar framkvæmdir; raunverulegt framtak einstaklingsins er allt miklu smærra í sniðum en okkur hentar ef við ætlum að halda hlut okkar í samkeppni við umheiminn. Einmitt vegna þess hversu allt er smátt hér verður samkeppnin einnig ákaflega stjórn- laus og kostnaðarsöm, óhemjuleg verðmæti fara árlega í súginn: má ég minna á frysti- húsin sem standa hlið við hlið út um allar jarðjr þótt annað þeirra geti hæglega unnið úr öllu því hráefni sem að landi berst; ýms iðnfyrirtæki önnur sem eins er ástatt um; skipulagsleysið í verzluninni; ringulreiðina í bankastarfsemi og öðrum þjónustufyrirtækj- um o. s. frv. Og þessi frumskógur svokallaðr- ar samkeppni grisjast aldrei, vegna þess að við hinar smávöxnu aðstæður á Islandi fær það ekki staðizt af félagslegum og pólitískum ástæðum að láta meiriháttar fyrirtæki verða gjaldþrola samkvæmt lögmálum samkeppn- innar; ef að slíku kemur er ævinlega hlaup- ið undir bagga og framkvæmd efnaliagsleg bjargráð, einnig af flokkum sem í orði telja sig aðhyliast óskert einkaframtak. Þetta er talið þeim mun sjálfsagðara sem hinum svo- köíluðu einkafyrirtækjum hefur að langmestu leyti verið komið upp með fjármunum al- mennings, lánsfé úr opinberum bönkum; menn eru ekki að hætta sínu eigin fé heldur fjár- munum annarra. Alll verður þetta hagkerfi að samfelldum óskapnaði, þar sem gallar einkaframtaks og áætlunarbúskapar leika lausum bala, en kostirnir njóta sín ekki, þar sem skipulagsleysi og ringulreið einkareksturs- ins helzt í hendur við þjóðnýtingu á töpunum einum. Raunar er óþarfi að fara um þetta almennum orðum. Við höfum að undanförnu liaft fyrir augunum mjög alvarlegar og fróðlegar stað- reyndir um þróun íslenzkra atvinnuvega. Ar eftir ár að undanförnu höfum við notið mik- ils góðæris, sett eitt aflametið af öðru, og á sama tíma hefur verðlag afurða okkar erlend- is hækkað til mikilla muna. Af þessum sökum liafa þjóðartekjurnar vaxið örar en í flestum öðrum löndum heims. En hvernig liefur þró- un atvinnuveganna orðið á þessu tímabili, hafa þeir ekki eflzt stórlega og sýnt vaxandi getu til þess að rísa undir nútímalþjóðfélagi? Raunin hefur orðið þveröfug — vegna þess að ekki hefur mátt koina til félagsleg forusta um þróun atvinnuveganna. Togurum lands- manna hefur fækkað úr 50 í 17 eða um tvo þriðju, sumum hefur verið lagt inn á víkur og voga, aðrir hafa verið seldir sem brota- járn, enn aðra hafa keppinautar okkar kló- fest — þeir sem eftir eru munu naumast þrauka nema skamma stund enn, enda sumir

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.