Réttur


Réttur - 01.01.1967, Síða 14

Réttur - 01.01.1967, Síða 14
tnjög stórfelldan hátt með því að heimila al- þjóðlegum auðhring að koma hér upp iðn- fyrirtæki sem bera mun ægishjálm yfir allar atfhafnir landsmanna. I>ví var haldið fram þegar þessir samningar voru gerðir að hér væri um að ræða eina undantekningu og ekk- ert fordæmi fyrir fleiri samninga af þessu tagi; þetta erlenda fyrirtæki væri aðeins auka- geta sem ætti að efla íslenzka atvinnuvegi. En nú þegar er tekið að kræla á næsta ískyggi- legum málflutningi í blöðum og á mannfund- um. Nú er sagt að vandi íslenzkra atvinnuvega og hrun mikilvægra greina í sjávarútvegi sé sönnun þess hver framsýni það hafi verið að semja við auðhringinn. Samkvæmt þeirri kenningu er hann ekki aukageta og undantekn- ing, heldur á hann að fylla upp í þau skörð sem eru að brotna í íslenzka atvinnuvegi; þessi atvinnurekstur útlendinga á að koma í stað- inn fyrir athafnir sjálfra okkar. Einn af helztu sérfræðingum ríkisstjórnarinnar komst meira að segja svo að orði í ræðu sem hann hélt ’sl. haust um uggvænlegt ástand í atvinnumál- um og efnahagsmálum, að erlend stóriðja væri nú helzti vaxtarbroddurinn í framkvæmd- um hérlendis — þar væri semsé framtíðin. Festi sá hugsunarbáttur rætur, að einu gildi þótt íslenzkum atvinnurekstri hraki ef erlent framtak fyllir upp í eyðurnar, ætti varla að þurfa að færa rök að því hvernig komið er draumsýn íslendinga um sjálfstætt þjóðríki. Eg þekki engin dæmi þess í veröldinni að þjóð sé talin sjálfstæð, hvorki i orði né á borði, ef atvinnuvegir hennar eru að verulegu leyti í höndum útlendinga. Slíkar þjóðir eru nýlendur eða hálfnýlendur. Eg skal ekki ræða hér sérstaklega um alúmín- samningana; þeir hafa verið ræddir mjög ýtarlega síðustu tvö árin og senn kemur að dómi reynslunnar; aðeins vildi ég víkja að einu atriði sem sérstaklega snertir það við- fangsefni sem ég hef kosið að spjalla um. Raforkan er ein sú auðlind sem land okkar býður upp á og við höfum enn sem komið er aðeins hagnýtt að óverulegu leyti. Alúmín- hringurinn er hingað kominn til þess að kaupa af okkur raforku; við höfum lofazt til að selja 'honum raforku á langlægsta verði sem um ræðir í Evrópu um þessar mundir, verði sem naumast stendur reikningslega undir tilkostn- aði okkar. Með alúmínframleiðslu kemur hringurinn hins vegar raforkunni í fullt verð. Verðmætisaukinn kemur fram í alúmínverð- inu og mun nema miljörðum og aftur milj- örðum króna á samningstímábilinu. En þessi verðmæti, unnin úr auðlindum okkar, verða ekki okkar eign; auðhringurinn flytur þau úr landi brott til þess að koma sér upp eignum og framleiðslutækjum annarsstaðar. Enda þótt allir viðskiptasamningar standist sam- kvæmt útreikningum stjórnarvalda og hring- urinn reynist eins og bezt verður á kosið, eru þetta engu að síður óhagkvæm samskipti ef 'lengra er litið, vegna þess að verðmætisaukn- ingin helzt ekki í landinu og verður ekki til þess að styrkja efnáhagslegar undirstöður þjóðfélagsins. Það skilur á milli fullvalda rík- is og ófullvalda, að hið fyrrnefnda lítur á það sem meginverkefni sitt að nýta aillar auð- lindir sínar til þess að efla innlent efna'hags- kerfi til frambúðar; í hinu síðarnefnda flyzt verulegur lduti af framleiðsluarðinum úr landi. Við ætluðum okkur ]>ann hlut, þegar við end- urheimtum sjálfstæðið, að smíða gæfu okkar sjálfir og einir, en dyr hafa nú verið opnaðar erlendum atvinnurekstri á Islandi, athöfnum sem eiga að tryggja gróða erlendra manna á íslenzkum auðlindum, og ískyggilegast er að þar skuli nú talað um vaxtarbrodd efnahags- lífsins. ALÞJÓÐASAMSKTPTI Þegar rætt er um þann vanda og þá vegsemd að vera Islendingur, þátttakandi í þeisrri merkilegu tilraun hvort örfámenn þjóð geti haldið sínu í samskiptum við stórar, auðugar og voldugar þjóðir, væri hægt að víkja að 14

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.