Réttur


Réttur - 01.01.1967, Page 25

Réttur - 01.01.1967, Page 25
jöfnu, til verklegra framkvæmda. Þannig hef- ur ríkisstjórnin fengið samþykkt á tveim síð- ustu þingum 10% niðurskurð á fjárveiting- um til verklegra framkvæmda, miðað við hið upphaflega fjárlagafrumvarp. Þessi niður- skurður hefur þýtt: færri skólastofur, færri sjúkrarúm, lélegri vegi eða í stuttu máli sagt: lilfinnanlegan samdrátt í opinberum fram- kvæmdum. Þar við bætist að eðli þarfanna í borgar- þjóðfélagi okkar hefur breytzt í þá veru sem áður er vikið að: ýmsum frumþörfum verður ekki fullnægt nema með félagslegu átaki. Svo er t. d. um gæzlu barna í Reykjavík og öðrmn stærstu kaupstöðum landsins. Rorgarumhverf- ið kallar á sérstök dagheimili til þess að ann- ast barnagæzluna meðan foreldrarnir eru við vinnu á daginn; það kallar ennfremur á ein- setna skóla er geti veitt börnum og ungling- um aðstöðu til að stunda allt sitt nám innan veggja þeirra, undir handleiðslu kennara, í stað þess að því er enn velt að verulegu leyti yfir á heimilin (heimanám, fyrirsetning und- ir næsta dag). Það gerir ennfremur þá kröfu til hvers bæjarfélags að það skipuleggi fyrir- fram ný hyggðahverfi, með malbikuðum göt- um, leikvöllum, dagheimilum og skólahúsnæði áður en viðkomandi hverfi byggist verulega; og svo mætti lengi telja. EYMD HINS OPINBERA Með hliðsjón af þessum kröfum sem sam- svara brýnustu þröfum hvers bæjarbúa, má marka hve því fer víðsfjarri að núverandi rík- isstjórn og borgarstjórn Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik hafi sinnt sómasamlega þörfum nútíma borgarþjóðfélags. Þessi stjórnarvöld hafa á skipulegan hátt girt fyrir félagslega lausn á húsnæðismálum borgafbúa og slaðið sem klettur gegn tillögum Alþýðubandalags- ins í borgarstjórn um að bæjarfélagið beiti sér fyrir byggingu leigu'húsnæðis handa þeim sem það kjósa eða hafa enga fjárdagslega mögu- leika á að eignast sitt eigið húsnæði. Allar þær þúsundir manna er stofnað hafa heimili á síðustu árum hafa ekki átt annars kost en ofurselja sig einkabraskinu, — annað hvort með því að kaupa fullgert húsnæði af bygg- ingarbröskurum eða búa í lengri eða skemmri tíma við þá okurleigu sem viðgengst á öllu leiguhúsnæði einkaaðila, — ellegar ráðast í að reisa sér þak yfir höfuðið upp á eigin spýt- ur og veðsetja þar með líf sitt til margra ára. Meðan núverandi stefna ræður ríkjum á unga kynslóðin á íslandi bókstaflega engra kosta völ: henni er þröngvað til þess að leysa hús- næðisvandamálið með einkaframtaki sínu og — það sem meira er — að afneita menningar- legri tilveru sinni um árabil vegna þess að stjórnarvöldin gera henni skylt að greiða hin lágu lán (sem vísitölubindingin margfaldar) upp á þriðjungi meðal mannsævi. Að þeim tíma liðnum er fjölskyldan að vísu orðin hús- eigandi, en hún hefur um leið afvanizt öllu félags- og menningarlífi vegna vinnuþrældóms sem eignin hefur kostað hana. Líf hennar er orðið því snauðara að innihaldi sem það er auðugra að veraldargæðum. En þar með er saga húsnæðisánauðarinnar ekki nema hálfsögð, þvi að hin nýju byggða- 'hveífi sem einkaframtakið fær úthlutað skort- ir allan almenningsútbúnað sem þarf til þess að það geti kallazt byggilegt siðuðum mönn- um. Húseignin stendur árum saman mitt í gjörspilltu umhverfi, milli fjallhárra uppmokst- urshauga, við gangstéttarlausar götur sem eru ekki malbikaðar fyrr en að áratug eða jafn- vel áratugum liðnum. Spyrjum enn síður um almenningsgarð hverfisins og íþróttavöll: þeir líta venjulega ekki dagsins ljós fyrr en börn- in eru á bak og burl og hafa komið sér fyrir ásamt afkvæmum sínum í nýju hverfi, er hýð- ur upp á ámóta lífsskilyrði. Svipuðu máli gegnir um skólahúsnæðið í hinum nýju hverfum; það er ekki einungis ó- fullnægjandi að því er varðar fjölda kennslu- stofa, eins og tvísetningin vitnar gerst um, heldur liða yfirleitt ár og dagar áður en þar 25

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.