Réttur


Réttur - 01.01.1967, Síða 28

Réttur - 01.01.1967, Síða 28
sig bróðurpartinum af tekjum almennings, meðan hinum sameiginlegu þörfum er haldið niðri á hungurstigi. Krafan um að félagslegir aðilar — ríki, bæjar- og samvinnufélög — taki að sér að sinna þeim þörfum sem verða ekki leystar svo vel sé nema með félagslegu átaki er jafnframt krafa um hagkvæmari verkaskiptingu í þjóð- félaginu: að hver og einn þurfi ekki að bjástra við það árum saman að koma sér upp þaki yfir höfuðið; að móðir með eitt barn sé ekki bundin yfir því allan daginn o. s. frv. Engum dettur í hug að gagnger breyting geti orðið á samfélagslegri þjónustu þessara aðila nema tekjulindir þeirra aukizt að sama skapi. Það þýðir í reynd að rikið þarf að taka í sínar hendur verulegan hluta af innflutningsverzl- uninni og bæjar- og samvinnufélög þurfa að stórauka hlutdeild sína í rekstri atvinnulífsins. Aukin samneyzla þýðir ennfremur að þvi stærri hluti af tekjum manna renni til ríkis og bæjarfélags í formi skatta og útsvara sem bætt og aukin þjónustustarfsemi þessara aðila leysir einkaneyzluna og einkabraskið af hólmi á fleiri sviðum. Afstaða almennings til greiðslu opinberra gjalda hlýtur þá að breytast frá því sem nú er, vegna þess að flestir munu fljótlega sannfærast um kosti hins félagslega framtaks, sé því stýrt af aðilum sem 'hlúa að því í stað þess að fjandskapast við það eins og íslenzkir ráðamenn hafa undantekningarlítið gert hing- að til. Afstaða manna mun breytast því fyrr sem betur tekst að tryggja — með raunveru- legu skattaeftirliti — réttlátt skattakerfi er miðar að ósvikinni tekjujöfnun þegnanna. Af framansögðu má draga þá ályktun að baráttan fyrir fullnægingu hinna sameiginlegu þarfa ætti að vera kjarninn í íslenzkum stjórn- málum um þessar mundir. Þessi barátta varð- ar lífohamingju hvers einstaklings í landinu. Nú þegar í hönd fara vikur vísvitaðra kosn- ingalyga og upphrópana verða íslenzkir launa- menn að gera sér grein fyrir því að þeir eiga aðeins um tvo kosti að velja: annað hvort að sökkva dýpra niður í fen einkaneyzlu, vinnu- þrældóms og menningarleysis sem umboðs- stjórn verzlunarauðvaldsins — viðreisnar- stjórnin -— býður upp á, eða hafna þessu til- boði einkabraskaranna í krafti félagsvitundar sinnar og leggja lið þeim stjórnmálaöflum sem berjast fyrir félagslegri, sósíalískri lausn á þeim vandamálum sem íslenzk borgarmenning og íslenzkur kapitalismi neyðir þá til að glíma daglega við. 28

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.