Réttur


Réttur - 01.01.1967, Qupperneq 44

Réttur - 01.01.1967, Qupperneq 44
hafa svolítið meira til brunns að bera en hina venjulegu barnalæknismenntun sína. Leggja ber mikla á'herzlu á hæfni og undir- búning aðstoðarstúlkna. Það er með öllu ó- verjandi, að til þess starfa séu teknar stúlkur utan af götunni undirbúningslaust. Bezt er vitaskuld, að aðstoðarstúlkurnar hafi fóstru- menntun, en sé ekki hægt að koma því við, er óhjákvæmilegt að þær eigi kost á nokkurri verklegri þjálfun og bóklegri fræðslu, áður en þær taka til starfa, auk þess sem þær þarf að velja sérstaklega með tilliti til umgengni við börn, skapgerðar og almenns persónuþroska. Talið er hæfilegt, að ekki séu fleiri en 2—4 börn í umsjá hverrar fóstru. Fóstran sér um sömu börnin ávallt, nema þegar skipt er um vakt, en þá tekur önnur fóstra við og er það einnig ávallt hin sama. Margir mæla með því, að hverri vöggustofu sé skipt niður í litlar einingar, sem hafa á sér heimilislegan blæ og hlýlegan. Nægilegt þarf að vera af leikföngum og öðrum úrræðum lil að örva skynjun barnsins. En sjaldnast er þetta nóg, því að þrátt fyrir þetta verður fyrir okkur hinn erfiði tálmi flestra barnaheimila: vaktaskiptakerfið. Margir hafa rætt um það mál, því að allir eru sammála um, að það sé hinn mesti bagi barnMieimila. Fáir treysta sér til að halda því fram, að hægt sé með öllu að komast hjá vaktaskiptum starfsfólks, en unnt er þó að gera þar verulega bót á, ef góður vilji er fyrir hendi. Eins og ég gat um, er æskilegast að sama fóstran skipti sér sem mest af sama barninu og reyni allt hvað hún má til að ganga því í móður stað. Vel er hægt að koma því þannig fyrir, að ekki annist fleiri en tvær fóstrur sama barnið. Mörg börn þola það, ef dvölin er ekki mjög löng. Þar sem sjáanlegt er að andlegri heilsu barnsins hrakar eða því fer óeðlilega Htið fram — og það leynir sér vitaskuld ekki — er ekki annað til ráða en að sú óstra, er annast barnið mest, taki það alveg að sér meðan það er að ná sér. Þarf þá fóstran að búa á barnaiheimilinu og sjá um barnið dag og nótt eins og góð móðir myndi gera. Áðan gat ég þess, að nauðsynlegt væri að hafa dvöl barnsins á barnaheimilinu eins stutta og mögulegt er. Fari barnið á vistheimili strax eftir fæðingu, er þó tiltölulega lítil hætta á ferðum, þó að barnið dveljist þar til 5—6 mánaða aldurs, sé heimilið rekið samkvæmt framangreindum meginreglum. En úr því eykst hættan hröðum skrefum. Þess vegna þarf að leggja allt kapp á að sjá barninu fyrir liæfi- legum varanlegum dvalarstað, áður en það er hálfs árs gamalt. Fyrir þann tíma þarf að ganga frá fóstri allra þeirra barna, sem ekki eiga afturkvæmt til móður sinnar, enda á það yfirleitt að vera hægt, nema alveg sérstakar og óvenjulegar aðstæður komi til. Ætli móð- irin sjálf að annast barnið, þarf að leggja mi'kla á'herzlu á að hún geti tekið það fyrir hálfs árs aldur — og oft mun hún þarfnast aðstoðar við að búa sér og barni sínu heim- ili. Dragist þetla lengur, er óhjákvæmilegt að móðirin auki verulega afskipti sín af barninu, unz hún fær það með öllu. Sérstaka varúð þarf að viðhafa, þegar um vistun 6—18 mánaða barna ræðir. Þar má aldrei nota barnaheimilið, nema sem algjört neyðarúrræði, þegar engir möguleikar eru á einkafóstri, sem hæfir. Reynist hins vegar ó- umflýjanlegt að leita á náðir barnaheimilis má dvöl barnsins helzt ekki fara fram úr tveim- ur mánuðum. Þeim börnum þarf þar að auki einatt að sinna sérstaklega í samræmi við það, sem að ofan greinir. Eftir því sem nú hefur verið sagt, ætti að liggja ljóst fyrir, að barnaheimili fyrir ung- börn, sem rekið er með sjúkrahúsfyrirkomu- lagi, þar sem þorri starfsfólks er lítt eða ekki þjálfaður, þar sem vaktaskiptakerfinu er beitt, þar sem afskipti mæðranna af börnunum eru lítil og lítið eða ekkert reynt til að auka þau, þar sem dvöl barnanna, inargra hverra er of löng, — heimili, sem þannig starfar hefur ekki tekið tillit til þeirra endurbóta, sem nú þykja sjálfsagðar og nauðsynlegar og er því engin von til annars en mörg börn, er þar dveljast hljóti veruleg og varanleg andleg mein. 44

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.