Réttur


Réttur - 01.01.1967, Page 45

Réttur - 01.01.1967, Page 45
UNDIR JÁRNHÆL AUÐSOGHUNGURS Bandarlkin, — íbúafjöldinn þar er 6% af ibú- um heims, — eiga eða ráða yfir 60% af auðæfum jarðar. Þjóðir, sem telja 14% af íbúum heims, neyta 80% af neyslu heimsins. 16% af íbúum jarðar eiga 70% af auðæfum heims. HYLDÝPIÐ Afleiðingin af þessari hróplegu misskiptingu lífskjaranna er, að tveir þriðju hlutar mannkynsins búa við neyðarkjör, verða sulti og sjúkdómum að bráð. 30.000 börn deyja þvl daglega úr sulti eða hungursjúkdómum hjá þessum rændu og fátæku þjóðum. 9 milljónir þarna á óri. En meðaltekjur I Bandaríkjunum eru 50 sinnum hærri en I mörgum þróunarlöndum. Um 50 milljón- ir Breta reykja daglega fyrir álíka upphæð og 50 milljónir Indverja hafa til að lifa fyrir. Og arðrán hinna voldugu auðhringa vex I sí- fellu. Skuldabyrði þróunarlandanna var 1954 7.5 milljarðar dollara, 1966 var hún orðin yfir 20 milljarðar. Sú „hjálp," sem talað er um til þessara landa, er að engu gerð sakir vaxandi arðráns hring- anna, einkum í mynd hækkaðs verðs á iðnvarningi iðnaðarlanda en lækkaðs verðs á hráefnum þróun- arlandanna. Á árinu 1954 gat kaffiframleiðandi ! Brasiliu keypt jeppa fyrir 19 poka af kaffi, en 45

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.