Réttur - 01.01.1967, Page 50
ERLEND
VÍÐSJÁ
FJÖLDAMORÐ
í KYRRÞEY
„The Silent Slaughter. The role of the United
States in the Indonesian massacre.“ Utg. Youth
Against War and Fascism. 34 síffur, 45 cent. 58
West 25 Street New York. N. Y. 10010.
Samkvæmt upplýsingum Time í London,
er tala þeirra sem látið hafa lífið vegna of-
sókna herforingjastjórnarinnar í Indonesíu
frá október 1965 til fébrúar 1966 um ein
milljón. Bandarískur prófessor við Cornell
háskólann, sem er sérfræðingur í málefnum
Indonesiu, hefur komist að sömu niðurstöðu.
A fjórum mánuðum hefur ein milljón manna
verið drepnir en það er fimmfalt fleira en
tala fallinna í Vietnam síðustu 12 ár.
Hefur nokkurt fylgisblað Atlantshafsbanda-
lagsríkjanna birt greinar, sem lýst hafa sam-
úð með þessum fórnardýrum? Hefur nokkur
séð myndir af þessum fjöldamorðum? Þetta
eru mestu fjöldamorð, síðan þriðja ríki Hitl-
ers féll. Lætur enginn NATO-sinni sig þetta
skipta af því að kommúnistar verða fyrir barð-
inu á þessum ofsóknum?
„Tilraun kommúnista til stjórnbyltingar“
er hin opinbera skýring á atburðunum í Indo-
nesiu 30. sept. og 1. okt. 1965. Erfitt er að
afla sér öruggra heimilda um það sem skeði
þessa dagana — en heilbrigð skynsemi veldur
því að maður efast um sannleika skýringar
50
herforingjanna. Kommúnistaflokkur Indonesiu
var stærsti kommúnistaflokkur utan sósíal-
isku ríkjanna. Félagatal taldi 3 milljónir með-
lima, en fylgjendur flokksins munu hafa ver-
ið um 15—20 milljónir manna. Er ekki ólík-
legt að élí’kur fjöldaflokkur reyni að ná völd-
um án þess að fréttist um eina einustu fjölda-
göngu eða verkföll? Auk þess er ekki kunn-
ugt um nokkurt ávarp leiðtoga til flokksins
um að berjast. Og þegar fjöldamorðin hóf-
ust, heyrðist ekkert frá leiðtogum flokksins.
James Reston skrifaði 19. júní 1966 í New
York Times: „Efast má um hvort nokkurn
tíma hefði verið reynt valdarán, ef ekki hefði
komið til leynileg aðstoð frá Bandaríkjun-
um!!!“
New York Times birti yfirlit yfir starfsemi
SUKARNO, FYRRV. FORSETI INDONESIU, OG
SUHARTO HERSHÖFÐINGI RÆÐAST VIÐ.