Réttur - 01.01.1977, Blaðsíða 19
Brynjólfur og Hendrik um borð í báti i Petrograd 1920. Hugo Sillen og Oskar Samuelsson þekkjast.
þeim um að etja verkalýðnum til bræðravíga,
þá risu nú víðast hvar um lönd, en misjafn-
lega kröftuglega, kommúnistarnir, vinstri
armur verkalýðshreyfingarinnar, upp gegn
stríðinu og auðvaldi hver síns lands, — og
þegar þeir sigruðu í Rússlandi barst berg-
málið út um allan heim.
Þeir Brynjólfur Bjarnason og Hendrik
Ottósson urðu fyrstir Islendinga til að heim-
sækja land hinnar sigursælu verklýðsbylt-
ingar, svo sem fyrr er frá sagt í „Rétti".1’
Hendrik hafði þá þegar nokkur sambönd við
danska og sænska kommúnista, einkum
Bredrik Ström''. Brynjólfur stofnaði, í her-
bergi sínu á Stúdentagarðinum danska
(„Regensen") félag með dönskum kommún-
istum,a) Báðir kynntust þeir í Petrograd 1920
Willi MiinzenbergP ritara Alþjóðasambands
ungra kommúnista, og höfðu síðan við hann
nokkur bréfaviðskipti. Kommúnistískur
æskulýðsfélagsskapur hóf starfsemi sína á
Islandi, líklega mestmegnis ungir menn úr
Jafnaðarmannafélaginu í Reykjavík. Fulltrúi
frá þeim hópi mætti á 2. þingi Alþjóðasam-
bands ungra kommúnista, sem átti að haldast
á laun í Berlín í mars 1921. Var það Sig-
urður Grímsson'."1 En vegna lögregluofsókna
varð að fresta þinginu og flytja það til
Moskvu, þar sem það var haldið um svipað
leyti og 3. þing Alþjóðasambands kommún-
ista. En það þing sótti Olafur Friðriksson
ásamt Arsœli Sigurðssyni sem kunnugt er.
19