Réttur - 01.01.1978, Page 4
Svavar Gestsson tók samtalið.
að þátttakan haíi orðið mikil. Þá ber að
taka tillit til þess geysilega áróðurs sem
beitt var gegn verkalýðshreyfingunni,
allskonar hótunum gegn launamönnum.
Þarna beitti ríkisstjórnin sér alveg sér-
staklega, áróðurstæki hennar öll og at-
vinnurekendur að sjálfsögðu líka. Miðað
við allt þetta held ég að segja megi að
þátttakan liafi í rauninni orðið meiri en
búast mátti við.
Þessi mikla þátttaka sýnir auðvitað
hug verkalýðshreyfingarinnar allrar
gagnvart því gerræði sem stjórnvöld
beittu með ólögunum. Þátttakan sýndi
að það er ekki hægt að hræða fólk frá því
að leita réttar síns jm að beitt sé hótun-
um um refsiaðgerðir og hefndaraðgerðir.
Eðvarð: A þeim fjölmörgu fundum
sem haldnir voru fyrir aðgerðirnar um
allt land kom ekki fram einn einasti
maður sem mælti aðgerðum ríkisvaldsins
bót. Þar voru allir andvígir aðgerðum
ríkisstjórnarinnar. Skipti þar engu Iivar
í flokk menn höfðu skipað sér áður.
Benedikt: Það var sláandi dæmi um
það hve andstaðan var og er víðtæk að
þegar tveir íhaldsþingmenn, sem greiddu
atkvæði rneð ólögunum á Alþingi, komu
á fundi í sínum verkalýðsfélögum studdu
þeir uppsögir kjarasamninga - vegna lag-
anna sem þeir voru að enda við að sam-
þykkja! Þeir báðu verkalýðsfélögin að
hrinda af höndum sér þeim lögum sem
þeir tóku þátt í því að setja!
R.: Verkamannafél. Dagsbrún ákvað
að boða vinnustöðvun, en yfirleitt var
ákvörðun um þátttöku í verkfallinu tek-
in af hverjum einstaklingi fyrir sig.
Eðvarð: Við vorum þeirrar skoðunar
að félagið ætti að taka þessa ákvörðun
sjálft. Við héldum fund í Austurbæjar-
bíói 17. febrúar, 500 manna fund. Á
þeim fundi kom fram einróma andstaða
við kjaraskerðingarlögin. Með þetta að
bakhjarli var ákveðið að félagið boðaði
verkfallið. Ég tel reyndar að þetta hefðu
félögin yfirleitt átt að gera, og ekki að
setja félagsmennina í þá erfiðu aðstöðu
að standa einir án hins félagslega bak-
hjarls - félögin eiga að vera brjóstvörn
félagsmannanna.
Þátttakan í Dagsbrún varð nærri 100%
með örlitlum undantekningum senr litlu
máli skipti og oft stöfuðu hreinlega af
misskilningi.
Það var auðvitað öllum Ijóst að lögin
yrðu ekki brotin á bak aftur í fyrsta á-
4