Réttur - 01.01.1978, Page 8
LÚÐVÍK JÓSEFSSON:
VERÐBOLGUÞROUN
UNDANFARINNA ÁRA
KJARARÝRNUN
Stefna ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks í efnahags- og at-
vinnumálum hefur í grundvallaratriðum
verið andstæð stefnu vinstri stjórnarinn-
ar.
í tíð vinstri stjórnar jókst kaupmáttur
launa um 25-30% á tæpum 3 árum. Haf-
in var stórfelld atvinnu-uppbygging um
allt land og treyst á atvinnurekstur lands-
manna sjálfra. Sú mikla atvinna, sem síð-
an hefur verið, byggist fyrst og fremst á
þeim grundvelli, sem þá var lagður.
Hægri stjórnin lækkaði hins vegar
kaupmátt launa um 25-30% á 3 árum,
og dró verulega úr fjárframlögum til at-
vinnuveganna á sama tíma og erlend
stóriðja var undirbúin í ríkum mæli.
Stefna hægri stjórnarinnar hefur ein-
kennst af mikilli verðbólgu sem siglt hef-
ur í kjölfar gengislækkana og gengissigs,
nýrra og nýrra skatta ríkisins, síhækk-
andi vaxta og stóraukins milliliðakostn-
aðar.
Ríkisstjórnin hefur markvisst notað
verðbólguna sem hagstjórnartæki í þeim
tilgangi að koma frarn lækkun launa.
Hér skulu nú tilgreind nokkur sönn-
unargögn um stefnu ríkisstjórnar íhalds
og Framsóknar í efnahagsmálum.
Allar tölur sem nefndar eru hafa kom-
ið fram í opinberum skýrslum:
1. Framfærsluvísitalan
I. ágúst 1974 var framf.vísit. 297 stig
1. febr. 1978 - - 936 -
Framfærsluvísitalan hefur því hækkað
í tíð hægri stjórnarinnar um 215% á 41
mánaða valdatíma hennar.
2. Kaupmáttur launa
Samkvæmt skýrslum Kjararannsóknar-
nefndar var kaupmáttur tímakaups
verkamanna sem hér segir miðað við 100
fyrir árið 1971:
8