Réttur - 01.01.1978, Page 14
Sólveig Einarsdóttir:
UM
SJÁLFSÆVISÖGU
ANGELU DAVIS
Angela Davis hefur ritað sjálfsæfisögu
sína. Á enskunni ber sú bók heitið: An
Autobiography — with my mind on
freedom. (Sjálfsævisaga — með hugann
við frelsið). lltgefandi var Random
House Inc. Kom 1. útgáfa í okt. 1974,
sú þriðja í júní 1975. Vorið 1975 var
þessi sjálfsævisaga gefin út af Book of
the Month club — og síðan rak hver út-
gáfan aðra. Og nú er undirbúin kvik-
mynd um ævisögu hennar: „Hjarta mitt
vildi frelsi“.
Angela Davis er fædd 28. janúar 1944.
Ýtarleg ritgerð um æfi hennar fram að
ofsóknum og fangelsun er í „Rétti“ 1971.
Á árinu 1970 var Angela Davis efst á
lista FBI yfir eftirlýstar persónur. Hún
var elt, handtekin og ákærð fyrir morð,
Sólveig Einarsdóttir.
samsæri og mannrán í sambandi við til-
raun sem gerð var til þess að frelsa hóp
svartra fanga frá Soledad fangelsinu í
Kaliforniu. 16 mánuðum síðar — eftir
jafnlöng réttarhöld — var Jiún algjörlega
sýknuð af öllum þessum ákærum af hvít-
um kviðdómi.
Sjálfsævisaga hennar kom út í Banda-
ríkjunum 1974, þýdd á dönsku af Jprgen
Dragsdahl og gefin rit af Gyldendal 1975.
Eftir að Angela Davis hafði verið sýkn-
uð, hætti hún að vera gott fréttaefni. En
horfin er hún ekki. Hún býr í lágu, gulu
timburhúsi í útjaðri svarta gettósins í
Oakland í nágrenni San Fransiskó. Rit-
launum og öðrum greiðslum fyrir ræðu-
liöld og fyrirlestra hefur ekki verið varið
til einkaafnota heldur til áframhaldandi
baráttu .Angela er ein þeirra sem enn er
með í baráttunni. Hún hefði getað fund-
ið sér skjólstað meðal vellaunaðra svartra
14