Réttur - 01.01.1978, Page 21
Sigurður Ragnarsson:
NOKKRAR
HUGLEIÐINGAR
í tilefni af útkomu
bókarinnar
9. nóvember 1932
Sigurður Ragnarsson.
Ein þeirra bóka, sem út komu fyrir síðast-
liðin jól, var Gúttóslagurinn 9. nóvember
1932 eftir þá Ólaf R. Einarsson og Einar Karl
Haraldsson, en bókin bafði sem undirtitil:
baráttuárið mikla í miðri heimskreppunni. I
bókinni taka þeir félagarnir sér fyrir hendur
að rekja sem nákvæmast á grundvelli beztu
aðgengilegra heimilda átök þau, sem urðu í
Reykjavík hinn 9. nóvember 1932 í tengslum
við bæjarstjórnarfund, þar sem til umræðu
var tillaga frá meirihluta bæjarstjórnar um
verulega kauplækkun í atvinnubótavinnunni.
Einnig er fjallað um aðdraganda og eftirmál
þessara snörpu átaka, sem hafa ávallt í bug-
um manna, bæði þeirra sem lifðu þau og síð-
ari kynslóðar, staðið sem einn af hápunktum
harðrar stéttaharáltu á fjórða tug aldarinnar.
Hætt er þó við, að mörgum nútímalesendum
fflundi veitast örðugt að skilja þann hita og
hörku, sem einkenndi þessa atburði alla, ef
þeir væru ekki tengdir við raunverulegt bak-
svið sitt: heimskreppuna miklu og áhrif henn-
ar hér á landi. Það var einmitt á árinu 1932-
1933, að auðvaldskreppan fór hvað mestum
hamförum um heiminn, og hún reið að sjálf-
sögðu ekki hjá garði hér á landi, þótt ýmsir
glámskyggnir ráðamenn hérlendir virðist hafa
trúað því, að svo gæti orðið. Þegar hér var
komið sögu, þurfti ekki um þetta mál að deila
lengur því að ástand íslenzkra efnahagsmála
yfirleitt og hið stórfellda atvinnuleysi verka-
fólks alveg sérstaklega var óhrekjanleg sönn-
un þess að ísland var hluti af efnahagskerfi
auðvaldsheimsins. Þar var orsaka kreppunnar
að leita og það var á þessum grundvelli sem
hinn róttæki armur verkalýðshreyfingarinnar
undir forystu Kommúnistaflokksins reyndi að
fylkja verkafólki til haráttu.
21