Réttur - 01.01.1978, Side 32
nýlenduna í Alþýðuflokknum, en hóta að öðr-
um kosti samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn.
Áreiðanlega ákváðu þeir Stefán Jóhann Stef-
ánsson og aðrir liðar Framsóknar, er þeir
gáfu kost á sér, að svíkja flokkinn í Reykja-
vík þegar eftir kosningar og ganga opinher-
lega í lið með Jónasi og Co. . . .“
„Klofningsyfirlýsing Stefáns Jóhanns kom
eins og reiðarslag ofan í sameiningarstarfið
og reið baggamuninn við kosningarnar, enda
mun sh'kt tiltæki vera óheyrt fyrirbrigði í
pólitík Norðurlanda og þótt víðar sé leitað.
I vonleysi um samstarf verklýðsflokkanna, en
vitund um fjandskap við það af hálfu meiri-
hluta sambandsstjórnar Alþýðuflokksins,
hvarf fjöldi atkvæða fró flokknum, - það sem
Framsókn átti inni hjá Alþýðuflokknum til
föðurhúsanna, en aðrir, sem ekki höfðu trú á
Jónasi, yfir til Sjálfstæðisflokksins, sem Al-
þýðublaðið hafði ekki barizt gegn, og á ann-
að hundrað skiluðu auðu. Sameiningarlistinn
fékk að vísu 6500 atkvæði, hæstu atkvæða-
tölu, sem komið hefur á sameiginlegan lista
gegn íhaldinu í Reykjavík, en ó þriðja hundr-
að atkvæði vantaði á samanlagða atkvæða-
tölu verklýðsflokkanna frá síðustu alþingis-
kosningum, og sameiningarlistinn fékk aðeins
5 bæjarfulltrúa kjörna, vantaði tæplega auðu
atkvæðin á 6. fulltrúann . .
„Frá sjónarmiði sameiningarmanna urðu
kosningarnar, er tillit var tekið til vinnu-
bragða og svika hægri manna, hitaveitulof-
orða og óvenjulegs fjárausturs Sjálfstæðis-
flokksins og íhlutunar ríkisvaldsins með Fram-
sókn, stórsigur fyrir málstað sameiningar
alþýðurmar og verklýðsflokkanna, táknrænn
fyrir vilja fólksins að vinna einhuga saman
og að sósíalisma, án tillits til vilja Framsókn-
ar og íhaldsins. Hurð skall nærri hælum fyrir
klofningsliðum Framsóknar, að engin átylla
yrði fyrir nánari framkvæmd flokkssprenging-
ar, en í þessari átyllu var þó hangið . ..“
„Daginn eftir kosningarnar, sem voru 30.
janúar, hófst sprengjuárásin á Reykjavík hjá
Alþýðublaðinu með grein um að kosningarn-
ar væru stórfelldur ósigur og kommúnistum
kennt um, og síðan daginn eftir árásargrein ó
sameiningarmenn og mig persónulega, vara-
formann flokksins, og sagt, að ég byggi yfir
svo hættulegum ráðagerðum og hefði drýgt
þær syndir, að jafnvel kommúnista mundi
sundla er því yrði öllu bráðlega uppljóstrað
af Alþýðublaðinu - sem enn hefur reyndar
ekki verið gert. Síðan hélt reiðilesturinn yfir
mér og sameiningarmönnum áfram látlaust,
blað eftir hlað, og var augsýnilegt öllum, að
meiri hluti sambandsstjórnar hafði fyrirhug-
að brottrekstur minn úr flokknum og hugðist
með því að kæfa alla vinstri hreyfingu í Al-
þýðuflokknum . . .“
Á bæjarstjórnarfundi 4. febrúar rufu
svo þessir þrír hægri kratar samstarfs-
samninginn. Mótmælti Alþýðuflokkur-
inn í Reykjavík þessu samningsrofi 5. fe-
brúar.
Ffeltók nú klofningsofstækið hægri
broddana:
9. febrúar ráku 7 hægri kratar í stjórn
Alþýðusambandsins (A1 þýðu 11 okksins)
Fléðinn Valdimarsson, varaform. flokks-
ins, með 7 atkvæðum gegn tveimur, í
allri flokksstjórninni með 12 atkv. gegn
4. Dundu nú mótmæli verklýðsfélaganna
yfir Alþýðuflokksstjórnina, en ekkert
beit á þessa ofstækismenn, sem Stefán Jó-
hann stjórnaði.
21. febrúar ráku svo þessir 7 hægri
kratar í sambandsstjórn sjálfan kjarna
Alþýðuflokksins í Reykjavík - Jafnaðar-
mannafélag Reykjavíkur - úr Alþýðu-
flokknum. ,,7 me?m relia 700“ var fyrir-
sögn Þjóðviljans um þá frétt. Hlutfall
fylgisins í þessu kjarnafélagi flokksins
32