Réttur - 01.01.1978, Side 37
rifjum Hermanns og Eysteins fyrr en bók
Héðins, „Skuldaskil", kom úr 1938.2
En valdamönnum Framsóknar þótti
ekki nóg að gert, er Alþýðuflokkurinn
hafði nú verið klofinn. Hann skyldi nú
og svo niðurlægður að hanu sæi hvað það
kostaði, ef hann beygði sig ekki fyrir öll-
um afarkostum Framsóknar. (Og sam-
tímis vann Jónas að því að undirbúa
samstarf við íhaldið, þá ,,þjóðstjórn“, er
síðar komst á og Stefán Jóhann gekk í á
móti vilja meirihluta flokksstjórnar.)
Vinnudeila kom upp í rnars 1938 milli
togarasjómanna og útgerðarmanna.
Framsókn kom fram með gerðardóms-
frumvarp, er leysa skyldi deiluna. Var
það j)annig úr garði gert að Alþýðu-
flokknum var ómögulegt að sætta sig við
það. Meiningin var að knýja jietta frum-
varp fram á einum sólarhring, 16,—17.
mars 1938.
Fundur var haldinn 16. mars að kveldi
1 Sjómannafélagi Reykjavíkur í Iústa-
mannaskálanum til að mótmæla frum-
varpinu og að fundi loknum fjölmenntu
sjómenn mjög upp í Alþingishús. Fyllt-
ust ekki bara pallarnir, heldur tóku og
rúður að brotna í skilrúminu uppi við
mnganginn í deildirnar, því þá var Al-
þingi aðeins í efri hæð hússins, en há-
skólinn niðri. Var þá Jiað ráð upp tekið
að láta útvarpa frá Alþingi öllum ræð-
um, til þess að stilla til friðar og tókst
það.
Haraldur Guðmundsson hafði lýst yf-
því að Alþýðuflokkurinn hefði ákveð-
að „draga sig út úr ríkisstjórninni“ ef
frumvarpið yrði samjDykkt. Voru umræð-
Ur allharðar. Var þrem umræðum hespað
af í neðri deild þá nótt. Héðinn, ísleifur
°g ég fluttum rökstudda dagskrá um að
vísa málinu frá, sem var felld. Minnir
mig að Haraldur og ég hafi verið aðal-
ræðumenn í neðri deild af andstæðing-
um frumvarpsins. Drógust umræður nú
langt fram á nótt. Man ég að ég fór þá til
Haraldar og spurði hann hvort við ætt-
um ekki að halda jDessum umræðum á-
fram til morguns, svo Framsókn neyddist
til að fresta málinu til næsta dags. En
Haraldur kvað það ekki myndi hafa á-
hrif. Framsókn væri einráðin í j:>ví að
knýja þrælalögin fram með íhaldinu og
sparka Alj)ýðuflokknum úr ríkisstjórn-
inni. Varð umræðum svo lokið um nótt-
ina, líklega um Jorjúleytið að morgni 17.
mars, og þrælalögin samþykkt með atkv.
Framsóknar og íhalds gegn atkv. Komm-
únistaflokksins, Héðins og hægri krat-
anna.
Jón Baldvinsson, sem þá var í senn
forseti sameinaðs Alþingis og Alþýðu-
flokksins (Alþýðusambandsins), hafði þá
legið veikur um hríð og andaðist um
morguninn 17. mars, um sexleytið held
ég-_
Ég hef stundum hugleitt J^að hvort
það hefði nokkru breytt, ef umræðum
um gerðardómsfrumvarpið hefði verið
haldið áfram fram á morgun. Við and-
látsfregn Jóns Baldvinssonar hefði þing-
fundi auðvitað verið frestað um einn
dag. En ég býst ekki við að það hefði
breytt neinu. Framsóknarflokkurinn
skeytir hvorki um skömm né heiður og
svífst einskis, ef hann aðeins hefur valda-
aðstöðu til þess að knýja fram það sem
hann vill.
Máske hefði annað getað gerst ef úr-
slitahríðin og afsöguin hefðu ekki orðið
þessa nótt. Ég man að Haraldur lét í ljós
við mig vonbrigði einhvern næsta dag-
inn yfir því að sjómenn skyldu beygja sig
fyrir gerðardóminum og fara út. Ef úr-
37