Réttur


Réttur - 01.01.1978, Page 38

Réttur - 01.01.1978, Page 38
slitahríðin hefði dregist, kynni að hafa komið sú kergja í sjómenn við lát Jóns Baldvinssonar - þeir mundu honum enn togaravökulögin frá 1921 — að þeir hefðu ekki beygt sig fyrir jrrælalögunum, en til þess hefði þá Jmrft að koma skelegg for- usta frá Alþýðuflokknum, sem þá sem nú réð Sjómannafélaginu, og líklega hefði hann skort kjarkinn til að rísa gegn lög- um, þó kúgunarlög væru: En vissulega var þessi sólarhringur einn af þeim ,,dramatískustu“, sem ég upplifði í jrrjátíu ára atburðaríkri setu á Alþingi. En hægri krataforingjarnir lærðu ekk- ert af því, sem yfir þá gekk, annað en að beygja sig í duftið, til að fá að vera með. Er ár var liðið frá atburðum þessum samþykktu flestir þeirra 4. apríl 1939 lög, er felldu gengið og bönnuðu kaup- hækkanir verkalýðs til ársloka 1940. Það var inngöngumiðinn fyrir Stefán Jóhann í „þjóðstjórnina" með íhaldi og Fram- sókn 17. apríl 1939 - verstu afturhalds- stjórn, sem mynduð hefur verið á ís- landi. En Stefán Jóhann, sem fallið hafði út úr Alþingi 1937 sökum sigurs Komm- únistaflokksins í Reykjavík, komst nú inn á þing um bakdyrnar sem ráðherra! # Þessi ársfjórðungur, janúar-mars 1938, markaði djúpt spor í verklýðshreyfingu næstu áratuga sökum ofstækis liægri krataforingjanna, er þeir eyðilögðu þá einingu sem á komst í janúar, og klufu síðan sinn eigin flokk, þannig að upp frá því hefur Alþýðuflokkurinn ætíð verið minni flokkur en Sósíalistaflokkurinn, er sameiningarmenn og K.F.Í. mynduðu haustið 1938 - og Aljrýðuflokkurinn far- ið svo minnkandi að 1974 hafði hann 9,1% kjósenda, en Aljiýðubandalagið, arftaki Sósíalistaflokksins, 18,3%. En sakir sundrungar verklýðsflokkanna eru jáeir enn samanlagt aðeins með 27,4% kjósenda, eins og fyrir 40 árum - aðeins hærri, ef „Samtökin" eru reiknuð með, 32%. (Hins vegar hafa þeir samanlagt komist hærra um nokkurt skeið: 1946 alls 37,3%. Hins vegar hafði Framsókn sama atkvæðahlutfall 1974 og 1937, 24,9.) íslensk alþýða á enn eftir að læra mik- ið til jæss að gera einingu sína að því afli, er hún getur orðið og Jjarf að verða, svo alþýðan ráði landinu. Skyldu svipuhögg kaupránsflokkanna nú kenna íslenskum verklýðs- og starfs- mannastéttum að standa saman í kosn- ingum nú - ekki síður en í verkföllum? SKÝRINGAR: 1 Þetta rit, hér eftir kallað „Skuldaskil", birtist fyrst sem blaðagieinar í „Nýju landi", blaði þeixrra sameiningarmanna í Alþýðuflokknum og síðan sérprentað, titgefið 1938. Er þetta 218 síðna bók. 2 Héðinn birti 2 biéf í cftiimála við „Skuldaskil", sem sönnuðu hverjir stóðu saman um að hindia ráðherradóm Jónasar 1934. 38

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.