Réttur - 01.01.1978, Blaðsíða 46
SOFFIA GUÐMUNDSDOTTIR:
Ur frelsisbaráttu konunnar:
MARKMIÐ OG LEIÐIR
Betty Friedan og Simone de Beauvoir
ræðast við
Soffía Guðmundsdóttir.
Eftirfarandi samtal milli Simone de Beau-
voir og Betty Friedan er kafli úr bók eftir þá
síðarnefndu, en sú bók kom út í New York
árið 1976 og ber titilinn „It changed my
life“. Á íslenzku gæti hún kallazt Þáttaskil.
Bók þessi inniheldur allt í senn þekktar ræður
höfundar og ritgerðir, sem ekki hafa áður
birzt í heild, persónulegar endurminningar,
lilskrif frá konum úr ýmsum áttum, og koma
þar m. a. fram undirtektir við fyrstu hók
Betty Friedan, „The feminine mystique",
ÍÞjóðsagan um konuna).
Þá greinir þar einnig frá ýmsum bandarísk-
um kvennahreyfingum, baráttumálum, fund-
um þeirra og ráðstefnum, ágreiningsmálum
og svo aðgerðum af margvíslegum tilefnum.
Einn hluti bókarinnar nefnist „Minnisbók
Betty Friedan" þar sem hún rekur með eftir-
minnilegum hætti eigin reynslu á ýmsum
skeiðum ævinnar og segir frá því hvernig við-
horf hennar þróuðust á árunum kringum
1970.
4(5