Réttur - 01.01.1978, Síða 65
En meðan íbúar Norður -og Suður-
Víetnams voru þannig kvaldir og drepn-
ir árum saman af innrásarher Bandaríkj-
anna, græddu auðmenn Bandaríkjanna á
tá og fingri á því að selja hernum allt
mögulegt: ógrynni alls konar þarfra og
óþarfra vara var sent þangað — og kaup-
mannalýður Bandaríkjanna stórgræddi
á. Og þá fór „stóriðju- og hernaðar-klík-
an ekki varhluta af stríðsgróðanum:
Hergögnin, eiturgasið og önnur dráps-
tæki, sem beitt var — árangurslaust —
gegn hinni fátæku, sjálfstæðu þjóð Víet-
nam, kostuðu 150 milljarða dollara (ná-
lægt 37.950 milljarðar ísl. króna - allur
þjóðarauður Islands er rúmlega 1000
milljarðar króna). Greinilega hafa auð-
hringir stríðsgróðans grætt vel á þessum
„business“.
Og það má ekki gleymast að það eru
„bandamenn“ og „verndarar" íslands,
sem liér voru að verki i þessurn blóðuga
en gróðavænlega hildarleik.
[Tölur þær, sem hér eru tilgreindar,
eru að mestu eftir vestur-þýska tímarit-
inu „Spiegel", 6. og 7. hefti 1978].
Níðingsverk þýska hersins
í Sovétríkjunum
Hin alræmdu grimmdarverk nasista á
valdaárum þeirra: fangabúðir, pynting-
ar, útrýmingarbúðir eru oft á tíðum
skrifaðar fyrst og fremst á reikning leyni-
þjónustunnar - Gestapo — og annarra
stofnana nasistaflokskins. Svo hefur og
verið með grimmdarverk jiau sem f'ram-
in voru í stríðinu við Sovétríkin, sem
eins og kunnugt er, færðu mestu fórn-
irnar í síðari heimsstyrjöldinni. Hins
vegar hefur verið reynt að lireinþvo
þýska herinn af slíku, hann hafi farið að
alþjóðalögum í meðferð stríðsfanga.
Nú hefur vestur-þýskur sagnfræðing-
ur, Christian Streit, í doktorsritgerð
sinni í Heidelberg á 663 síðum, flett
rækilega ofan af þessari þjóðsögu og
sannað sök þýska hersins og þýsku her-
foringjanna á grimmdarverkunum gagn-
vart sovésku herföngunum. Bók hans
heitir „Die sowjetischen Kriegsgefang-
enen als Opfer des nationalsozialistischen
Vernichtungskrieges 1941-1945“ („So-
vésku herfangarnir sem fórnardýr nas-
istíska gereyðingarstríðsins 1941-1945“).
Birtir „Der Spiegel“, hið kunna vestur-
þýska tímarit, ýtarlegan útdrátt úr riti
þessu 13. febrúar 1978. (Nr. 7.)
Það yrði alltof langt mál að ætla að
fara að rekja hér allar þær sannanir, sem
fram eru færðar fyrir þátttöku þýska
hersins í Jdví hvernig sovésku herfangarn-
ir voru sveltir, pyntaðir og drepnir, þar
til loks að fór að draga úr grinnndarverk-
um þessum, þegar undanhald þýska hers-
ins hófst eftir Stalingradorustuna og
minna varð um fangatöku, en verkalýð
fór að vanta í hergagnaverksmiðjur
Þýskalands og valdhöfunum þótti hag-
sýnna að halda lífi í herföngunum til að
þræla þeim út sem vinnudýrum í stað
J)ess að svelta þá í liel eða skjóta.
Eftir ýtarlegar rannsóknir, sem „Der
Spiegel“ birtir aðeins í útdrætti á bls. 84
-97 í þessu hefti, kemst höfundur að
þeirri niðurstöðu að af 5.735.000 - tæp-
um 6 milljónum - stríðsfanga og annarra
sovétborgara, er lentu í hendur Þjóð-
verja í stríðinu, hafi 3,3 milljónir - 58 af
hundraði látist af sulti og illri meðferð
eða verið myrtir. Samsvarandi tölur, þeg-
ar um er að ræða enska og ameríska her-
fanga, eru 4% - fjórir af hundraði.
65