Réttur - 01.01.1978, Page 70
INNLEND SgBB ■
VÍÐSJÁ 1
Verkföll og útskipunarbann
1. og 2. mars var efnt til mótmælaverk-
falls vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar
um að skerða vísitölubætur á laun. Skerð-
ingin þýðir að venjulegur launamaður
tapar sem svarar 5-6 vikna launum á ári.
Mjög mikil þátttaka var í mótmælaverk-
fallinu enda þótt það væri ekki boðað
með hefðbundnum hætti og þó að at-
vinnurekendur með ríkisstjórnina í
broddi fylkingar beittu grófustu og and-
styggilegustu hótunum um frádrætti og
brottrekstra. Verkfallið var þannig fram-
kvæmt að ákvörðunin var hjá hverjum
einstaklingi, en tvö félög, Dagsbrún og
Hið íslenska prentarafélag, boðuðu þó
verkföll í nafni félaganna. Samkvæmt
upplýsingum ASÍ voru þátttakendur í
verkfallinu 28-30 þúsund, auk þess tóku
BSRB-menn þátt í verkfallinu og er talið
að þeir hafi verið um 3000 talsins. Verka-
lýðsfélögin gáfu síðan út sína taxta sam-
kvæmt gildandi samningum og eru þeir í
rauninni mjög víða virtir, en atvinnurek-
endur gáfu út sína taxta að frádreginni
skerðingu vísitölubótanna.
í framhaldi af mótmælaverkfallinu 1.
og 2. mars hóf verkalýðshreyfingin und-
irbúning frekari aðgerða. Begar þetta er
skrifað hefur verið boðað útskipunar-
bann á nær öllum höfnum í landinu
undir forystu Verkamannasambands ís-
lands. Er þegar ljóst af viðbrögðum
stjórnarvalda og hótunum atvinnurek-
enda að útskipunarbannið er mjög á-
hrifamikil aðgerð.
Hafnarverkfall
17. mars dró til tíðinda við höfnina í
Reykjavík. Verkamenn mættu til vinnu
um morguninn en höfðust við í kaffi-
stofum til klukkan 10. Ástæðan var sú að
kjaraskerðingarlögin höfðu í för með sér
skerðingu sem nam tveggja stunda laun-
um. Þegar næst var borgað út fengu hafn-
arverkamennirnir full laun greidd fyrir
40 stunda vinnu.
Vandaræðafyrirtæki
Eitt það mál sem mest er fjallað um
um þessar mundir er fyrirsjáanlegur
hallarekstur málmblendiverksmiðjunnar
á Grundartanga í Hvalfirði. Verksmiðj-
an en sameign íslenska ríkisins og norska
fyrirtækisins Elkem-Spigerverket. Sam-
kvæmt því verði sem fæst fyrir afurðir
slíkrar verksmiðju í dag yrði árshallinn
2.5 mill jarðar króna - enda þótt fyrirtæk-
ið fái raforkuna undir kostnaðarverði.
70