Réttur - 01.08.1980, Side 5
Austur-Evrópu útmá liver aðra, — en
Bandaríkin sleppi, bara græða seni mest
eins og síðast.
Heimskan ríður ekki við einteyming
hjá herkóngum Mammonsríkisins, ef
jjeir ætla stjórnmálamenn Vestur-Evrópu
svo vitlausa að jaeir muni Ijá þjóðir sín-
ar sem fórnarpeð í slíkt brjálæði. — Það
má máske telja einstökum íslenskum of-
stækismönnum trú um að rétt væri að
haga sér svo, en vart mun íslensk j)jóð
veita slíkum mönnum vald til að tortíma
ís'endingum í þágu Kanans.
Hitt verða menn að muna að í Sovét-
ríkjunum græðir enginn á vopnafram-
leiðslu, þau hafa lagt til að eyðilegg’a
i)ll atomvopn, — en Bandaríkin fellt það,
— og að Sovétþjóðirnar misstu 20 millj-
ónir manna í stríðinu við Hitler, svo
liver einasta fjölskylda átti um sárt að
binda, — en Bandaríkin misstu hlutfalls-
lega færri menn í stríði Jrví er við Islend-
ingar mistum þá í hafið.
•
Hætfan, sem vofir yfir veröldinni, er
svo nálæg og ægileg, að hún æffi að
knýja hvern hugsandi mann til að gera
allt, sem í hans valdi sfendur, til þess
að stöðva vitfirrt vígbúnaðarkapphlaupið
og knýja fram eyðileggingu og algert
framleiðslubann allra atom-vopna.
Albert Einstein, sá mikli en trúaði
vísindamaður, er vann manna mest —
þó oft með óttablöndnum áhuga, — að
smíði kjarnorkusprengjunnar, sagði er
hún var fullgerð og sprengd og ægileg-
ur eyðingamáttur hennar varð Ijós:
„ÞETTA ER DJÖFULLINN“.
Ameríska yfirstéttin hefur hingað til
einbeitt sér að útbreiðslunni á veldi
MAMMONS, hins „lítilsigldasta af þeim
föllnu englum, er fylgdu Satan forðum“
svo notuð sé samlíking Miltons í „Para-
dísarmissi", — enda skírði Matthías
Jochumsson strax 1893 ríki hennar
„Mammonsríki Ameríku“. — Nú ætlar
þessi yfirstétt, brjáluð af hervaldi sínu
og auð, að ofurselja jörðina og íbúa
hennar djöflinum, svo notuð sé samlík-
ing Einsteins, eins mesta, besta og vitr-
asta manns þessarar aldar.
Er ekki mál að linni?
Hætt.an af þeirri ægiþróun, er við
blasir, ef „valdaklíka herforingja og stór-
iðjuhölda" (svo notuð séu orð Eisen-
howers forseta um valdhafa Bandaríkj-
anna) fær að fara sínu fram, er því hörmu-
legri, sem mannkyninu bjóðast nu sakir
tækniþróunarinnar dásamlegustu mögu-
leikar, sem það' nokkru sinni hefur haft,
til þess að útrýma gersamlega fátækt,sjúk-
dómum, fáfræði og þrældómi af þessari
jörð.
Með afnámi vígbúnaðarins og fullri
hagnýtingu örtölvu-tækninnar rrsætti á
nokkrum áratugum gera vinnuna að leik
einum: annaðhvort „íþróttaæfingu“ 3—4
tíma á dag eða vinnu (t.d. 6—8 tíma)
hálft árið og frí á fullu kaupi hitt misser-
ið. — Og minnist þess að enn þræla börn
12—14 tíma á dag svo hundruðum þús-
unda skiptir, í frumstæðum löndum, —
og hundruð milljóna manna svelta.
En til þess Jressi tækni „Þriðju iðnbylt-
ingarinnar" verði notuð í þessum til-
gangi, sem hér er lýst, verða undratœki
örtölvunnar að vera sameign fjöldans,
sem og þorri stærri framleiðslutækja.
Ella fær fjöldinn ekki að njóta þeirra.
Ef þessi tæki verða eign örfárra auð-
hringa á jörðinni, þá verður mannkynið
133