Réttur - 01.08.1980, Qupperneq 8
Páll Theodórsson.
þeim bútum, sem koma má fyrir í einni
samrás. I upphafi þessa áratugs, sem nú
er senn á enda, var mögulegt að koma
svo mörgum bútum saman í eina sam-
rás að þar mátti koma fyrir öllu því sem
nauðsynlegt var að hafa í stjórneiningu
hinna stærri tölva. Slík rás, örtölvan,
spratt nærri fullsköpuð upp af þessari
tækni. Með þessu breyttist rafeindatækn-
in úr því að vera tækni fjarskipta og
stuðningsþáttur allmargra tæknigreina í
það að vera tækní sem muni grípa inn í
velflest störf þjóðfélagsins eftir 1—2 ára-
tugi.
Þetta stökk er hliðstætt því þegar hin-
ir fjölhæfu rafmótorar komu til sögunn-
ar og tóku að knýja ótal verkfæra og
tóla.
Fyrstu örtölvurnar komu á markað-
inn 1971. Fljótt varð ljóst að þessi nýja
uppfinning bauð upp á mun fjölbreyti-
legri möguleika en menn höfðu gert sér
grein fyrir. Áhrif örtölvanna eru nú þeg-
ar orðin mjög djúptæk og framundan
blasa við nærri óþrjótandi verkefni fyr-
ir örtölvumar. Margir fullyrða að ör-
tölvurnar muni valda byltingu í atvinnu-
háttum hinna tæknivæddu þjóða, ör-
tölvubyltingin sé framundan. Ýmsir full-
yrða að þær muni þegar hafa gjörbreytt
þessum þjóðfélögum um næstu aldamót,
þá verði vinnuvikan 20 klukkustundir
eða minna og að vinnuaflsþörf hinna
ýmsu atvinnugreina muni þá hafa gjör-
breyst, þannig að í fjölmörgum grein-
um muni aðeins þurfa brot þess vinnu-
afls, sem nú er þörf.
Jafnvel þó aðeins sé tekið mið af spá-
dómum hinna varfærnari er ljóst að
miklar breytingar eru framundan. Breyt-
ingar sem þessar ganga ekki átakalaust
yfir. Þess má víða sjá merki erlendis, þar
sem hatrömm átök hafa orðið í ýmsum
greinum þar sem áhrifa örtölvutækn-
innar er þegar farið að gæta í ríkum
mæli, t. d. í prentiðn. Á sama tíma og
áhrifa örtölvutækninnar fer að gæta
verulega hefur mikið atvinnuleysi hrjáð
flestar iðnvæddar þjóðir og hafa átökin
því vafalítið orðið enn hraðari en ella.
íslenskt þjóðfélag, J^ar sem atvinnu-
leysi hefur verið lítið síðustu áratugi og
meðalvinnutími fólks verið nálægt 50
klukkustundum á viku, ætti ]oví að fagna
hinni nýju tækni. Hinsvegar leikur eng-
inn vafi á því að fólki í einstökum at-
vinnugreinum muni þykja hin nýja
tækni ógna atvinnuöryggi sínu og snúast
til baráttu gegn öllum breytingum. Þeg-
ar má sjá merki slíkra viðbragða hér á
136