Réttur - 01.08.1980, Page 18
landi og notuð allmikið nú þegar, en
notkunin fer ört vaxandi. Eftir 5-10 ár
verða það ekki einungis stærri stofnanir,
sem munu hafa tæki til að komast í sam-
band við slíkar upplýsingatölvur. Ekki er
ósennilegt að svipuð tæki verði þá jatn-
algeng á venjulegum heimilum og lita-
sjónvörp eru nú, en líklegt má telja að
verð þeirra verði töluvert lægra en sjón-
varpstækjanna. í gegnum kerfið má þá fá
upjrlýsingar um sýningar kvikmyndahús-
anna, um fasteignir sem eru til sölu, írétt-
ir og margt fleira. í Bretlandi er þróun
slíkra kerfa komin vel á veg, og í Frakk-
landi er hafin mjög áhugaverð tilrauna-
starfsemi í þessa átt.
Þessi dæmi um notkunarmöguleika ör-
tölvukerfanna læt ég nægja hér. Áhrila
örtölvanna mun gæta nærri hvarvetna í
tæknivæddum þjóðfélögum er fram líða
stundir og breytingarnar, sem þær munu
valda, verða miklar.
Örtölvutæknin í íslensku þjóðlífi
Hér að framan hefur verið lýst í stuttu
máli möguleikum örtölvanna. Ymsar
spurningar vakna eðlilega í framhaldi af
lýsingu þessari. Hvernig verður þróunin
hér á íslandi, hver verða áhrif örtölvanna
í íslensku þjóðlífi? Hvar mun þessara
áhrifa einkum gæta? Hve ör verður þró-
unin? Mun hin nýja tækni skerða sam-
keppnisstöðu íslenskra atvinnufyrir-
tækja? Verða örtölvukerfin öll flutt in,ni
eða verða þau að nokkru marki hönnuð
og smíðuð hér á landi. Ég vil ræða nokk-
uð efni jrað sem spurningar sem þessar
fjalla um, nefnilega líkleg áhrif örtölv-
anna í íslensku jrjóðfélagi næsta áratug.
Lítum fyrst á undirstöðuatvinnuveg
jjjóðarinnar, fiskveiðar og fiskvinnslu.
Nálægt 10% af verði íslenskra fiskiskipa
mun liggja í rafeindabúnaði þeirra um
þessar mundir. Þrátt fyrir það að raf-
eindatækninni sé nú jregar beitt þar í
ríkum mæli eiga örtölvukerfin vafalítið
eftir að lijálpa til að ná sem mestum og
bestum afla með lágmarksfyrirhöfn. Fisk-
sjár munu þróast þannig að Jrær verði
enn öflugri tæki til að beina veiðarfærun-
um að fiskinum en nú er. Með hjálp raf-
eindatækninnar má vafalítið létta alla
meðhöndlun aflans og örtölvukerfi
munu tryggja það að eldsneytið nýtist
sem best við veiðarnar og siglingu skip-
anna. íslenskir aðilar hafa átt drjúgan
þátt í hönnun örtölvustýrðra vélgæslu-
tækja fyrir skip og eru jiau framleidd hér
á landi.
í fyrstihúsunum má bæta töluvert nýt-
ingu hráefnisins með því að nota raf-
eindavogir með örtölvum, sem senda nið-
urstöður vigtana til örtölvumiðstöðvar.
Örtölvan verður sívakandi með nýtingu
hráefnisins og gefur viðvörun jafnskjótt
og eitthvað fer úrskeiðis, t. d. ef hnífur í
flökunarvél skekkist. Þessi þróun er þeg-
ar komin á góðan rekspöl í íslenskum
frystihúsum og athyglisvert er að það eru
íslenskir tæknimenn, sem hafa hannað og
smíðað verulegan hluta af þessum bún-
aði. Að því er best er vitað eru aðrar
þjóðir ekki komnar lengra á þessu sviði,
nema síður sé, og eru allgóðar horfur á
að takast megi að ná jjarna nokkurri for-
ustu og ættum við þá að liafa góða mögu-
leika til að flytja slík tæki út til annarra
landa. Sjávarútvegur er einasta atvinnu-
greinin hér á landi jrar sem við höfum
framleiðslueiningu, sem er sambærileg að
stærð við hliðstæða einingu meðal ým-
issa nágrannaþjóða okkar, sem stunda
liskveiðar. Við ættum því hvergi að hafa
146