Réttur - 01.08.1980, Síða 23
ANDRE GORZ:
„GULLOLD
FRÍSTUNDANNA?U
André Gorz,1 hinn kunni rithöfundur um þjóðfélagsmál, austurrískur að ætterni en
nú franskur ríkisborgari, hefur ritað bók, er út kom hjá franska útgáfufélaginu Editi-
ons gaiiée nú í ár. Fjallar hún um „Þriðju iðnbyltinguna", gerbreytingu þá er örtölv-
an veldur á atvinnu- og þjóðlífi og nefnir hana á frönskunni „Adieaux au proletari-
at“ („Öreigalýðurinn kvaddur").
André Gorz lýsir afleiðingum þessarar „þriðju iðnbyltingar“ (gufuaflið gerði þá
fyrstu, rafmagnið næstu): Gerbreyting alls þjóðlífsins er að þróast. Hún krefst ný-
sköpunar hins pólitíska hugmyndaheims, máske djúptækari og róttækari en flestir
vinstrimenn hafa hugsað sér. Gorz iýsir framtíðarhorfum slíks róttæks endurmats
í þjóðfélagsmálum.
Sá kafli bókar hans, sem sérstaklega fjallar um afleiðingar „þriðju iðnbyltingar-
innar“ birtist hér nokkuð styttur í þýðingu Hauks Helgasonar hagfræðings.- Fyrir-
sögn kaftans er „Gullöld frítímans".
Það er rétt að undirstrika — ekki síst með tilliti til þess að í helstu iðnvæddu
auðvaldslöndunum eru nú meir en 17 miljónir manna atvinnulausar að nú er að-
eins um tvo kosti að veija: Ef auðvaldið fær áfram að ráða skapar örtöivubyltingin
því til handa „gullöld atvinnuleysisins". Ef vinnandi stéttir handa og heila hins-
vegar skilja sinn vitjunartíma og taka til sín völdin í þjóðféiaginu, leggja þær með
örtölvubyltingunni grundvöll að „gullöld frístunda og frelsis af þrældómi“.