Réttur - 01.08.1980, Page 38
Hér sést hvernig hermangara-
hofið gnæfir yfir aárar bygg-
ingar.
önnur hernaðartæki frá Kanada yfir ís-
land til Noregs og annarra Natolanda. —
Og hún þurfi máske fleira.
Er ekki áróðurinm og hótanirnar í
þeim anda þegar liafnar?
Er ekki Steingrímur Framsóknarfor-
maður þegar farinn að tala um að stytt-
ast fari í lífi stjórnarinnar, ef verkalýð-
urinn verði ekki nógu þægur? — En her-
námsmenn og olíufélög skulu hafa sitt
á þurru. Allt braskbáknið, hinar heilögu
kýr fhalds og Framsóknar, skuli óhreyft
látið.
Og er ekki Geir og ákafasta aftur-
haldsliðið að rifna af ofstæki út í Gunn-
ar Thoroddsen, af því hann leyfi sér að
mynda stjórn með kommúnistum?
Það hefur hingað til ekki þótt löstur í
166
Sjálfstæðisflokknum að feta í fótspor Ól-
afs Thors, þau, er hann sjálfur áleit sín
giftusamlegustu. En þeir erindrekar
Kanans í Sjálfstæðisflokknum, sem í öllu
vilja honum hlýða, hvað sem það kann
að kosta ísland og alþýðu þess, vinna nú
markvist að því að kljúfa flokkinn í
þeirri von að geta síðan myndað með
mestu bröskurum Framsóknar aftur-
haldssömustu ríkisstjórn, sem mynduð
hefur verið á íslandi.
Takist alþýðu landsins, flokkum henn-
ar og stéttasamböndum, ásamt öllum
frjálshuga og þjóðlega hugsandi mönn-
um úr hvaða flokkum sem er, ekki að
hindra þetta fyrirhugaða tilræði her-
mangaralýðsins við velferð alþýðu og
sjálfstæði íslands, þá er vá fyrir dyrum.