Réttur


Réttur - 01.08.1980, Page 47

Réttur - 01.08.1980, Page 47
anir þeir hafa á trúarbrögðum. (64. gr. stjórnarskrárinnar.) Og ef uppreisnar- maðurinn frá Nasaret, sem æðstu prest- ar kirkjunnar létu krossfesta forðum, ætti að tala við þá, sem hæst láta um trú sína, er viðbúið hann segði: „Sýn mér trú þína af verkunum“ —- og væri þá betra að ekki yrðu ríkir menn á vegi hans og hann segði þeim að fara og gefa eign- ir sínar og fylgja sér. Látum svo útrætt um kristnina, kon- una og fjölmiðla í sambandi við forseta- kosningar þessar. Hver verður framvindan? Hinn nýi forseti vor vakti á sér athygli í kosningabaráttunni fyrir hreinskiini sína og snjöil svör, en mest mun þó, auk jafn- réttisbaráttunnar, hin einlæga trú henn- ar á islandi, framtíð þess og frelsi, hafa skírskotað til manna. Það mun ekki af veita að sem flestir Islendingar reyni að standa fast að baki forseta vorum í þessum málum, svo mjiig sem þar kann á að reyna á komandi stormatímum. Forhert Nato-þý, ofstækisfull eftir ald- arfjórðungs forheimskvun í áróðursskóla hernámsvaldsins ameríska og erindreka þess, munu einskis láta ófreistað til að ófrægja hinn nýja forseta og undirbúa hamboð og sigur (iruggs Nato-manns við næstu forsetakosningar. Og að svo miklu leyti sem þessum þýjum finnst óhægra að reka áróður sinn gegn forsetanum op- inberlega vegna embættis hans, þá munu þau leggja því meiri rækt við að efla og útbreiða þá eiturþoku, sem leggur upp af því illgresi, — sem Gestur Pálsson fyrir einni öld í allri sinni hæðni kallaði hinn „heilaga og friðaða aldinreit" — það er „slúðrinu í bænum."7 Og máske gera of- stækismennirnir gangskör að því að sjá um að það slúður, sem þeir kunna ekki við að birta í blöðum hér heima, komi í staðinn í erlendum blöðum, eins og þeg- ar ber á. „Það er ei hollt að hafa dvöl hefðar upp á jökultindi," kvað Hannes forðum. Hættan er þar skorti skjól, nema vel tak- ist að varðveita sambandið við það áhuga- sama alþýðufólk, er hrelldi afturhalds- kurfana og sló ljóma á ísland með því að að kjósa konu í forsetastól. Það verður næðingssamt um nýja for- setann okkar, hvort sem sá næðingur nær til Bessastaða eða ekki. Sú harðskeytta valdaklíka, vel tengd voldugum erlendum auðdrottnum, er áhuga hala á að klófesta auðlindir ís- lands, sem telur sig hafa tapað í þessum forsetakosningum, mun einskis láta óireist- að til að vinna það tap upp. Jafnt spill- ingaraðferðin sem lymskulegur ófræg- ingarundirróður munu hagnýtt, til þess, ef ekki tekst að véla forsetann á vald hinna illu afla, þá skidi þó a. m. k. vera hægt að fella hann næst. Brögðóttir blaðamenn burgeisanna munu reyna að hagnýta sér litla reynslu forsetans í víðsjárverðum heimi stjórn- málainna: síma annan daginn út um heim að hættulegur kommúnisti sé orð- inn forseti á Islandi, — en koma svo næsta dag sjálfir með sakleysissvip og spyrja eins og blaðamaður Moggans (2. júlí), er hann spurði hvort kosning henn- ar táknaði „vinstri sveiflu“ og frú Vig- dís svarar í pólitísku sakleysi sínu: „ég er svo fjarri því að vera kommúnisti sem frekast getur orðið.“ — Ef blaðamaður- inn hefði spurt hið leikhúsmenntaða for- 175

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.