Réttur - 01.08.1980, Page 59
þessari hættu verður aðeins afstýrt með
markvissum, stórhuga og róttækum pól i-
tískum aðgerðum allra verkamanna handa
og heila.
Örlagastund íslensks verkalýðs:
Verður hann herra vélanna og
þar með örlaga sinna, — eða
tekst að gera hann að þræl
eða betlara
Verkalýður handa og heila vann sína
miklu sigra 1942—56 jöfnum höndum
með stjórnmála- og verkfallsvopninu.
Svo hefur og verið að mestu síðan í
hjaðningavígum liðinna áratuga: báðum
vopnum var beitt.
En nú verður hér gerbreyting á.
Til þess að afstýra því alræði, sem er-
lent auðvald og innlendir skósveinar
þess ætla sér að koma á, dugar einvörð-
ungu harðvítug, víðfeðma samstaða alls
verkalýðs, starfsfólks og menntamanna á
pólitíska sviðinu. Og að afstýra er ekki
nóg. Það er aðeins forsenda þess er verða
skal.
Þessi samstaða alls launafólks, faglegra
°g pólitískra samtaka þess, verður að
taka forustuna um framkvæmd örtölvu-
hyltingarinnar og alla gerbreytingu ís-
lensks atvinnulífs og fullnýtingu ís-
lenskra auðlinda, sem af þessari miklu
íðnbyltingu heims og öðrum framförum
hlýst og skipuleggja um leið þjóðarheild-
inni í hag, — það þýðir öllum almenn-
•ngi til góðs, — þá stórfenglegu lífskjara-
breytingu er þessum framförum fylgja,
— ef stjórnað er af viti og réttlæti.
Lífskjarabyltingin gamla afnam ör-
birgðina, fátæktina sem fylgju alls þorra
fólks frá vöggu til graíar.
Lífskjarabyltingin nýja afnemur eud-
anlega þrældóminn, gerbreytir eðli vinn-
unnar úr lífsnauðsyn í ánægjulega at-
orku — og þar sem enn væri ekki hægt að
framkvæma þessa iðnbyltingu, — segjum
á togurum (— það kæmi þar seinna), þá
mætti koma á vinnu hálft árið en íríi
hinn helminginn með lullu kaupi.
Rétt er að hafa það í huga að tækni ör-
tölvunnar krel’st ekki þeirrar óhenijU
samhrúgunar véla og manna í stórborg-
unum, sem hinar vélbyltingarnar ollu.
Ortölvuna má nota í smærri einingum,
skynsamleg dreifbýlispólitík getur sam-
rýmst henni. En hún krefst heildarstjórn-
ar á þjóðarbúskapnum, skynsamlegra
áætlanagerða um fjárfestingu, svo þessi
undratækni komi að fullum notum.
Alþýðan — svo við notum það gamla
góða orð um þessa samtakabeild — þarf
að vinna til samstarfs við sig vísinda-
menn hinnar nýju tækni og bestu og
reyndustu menn úr stétt gömlu atvinnu-
rekendanna, þá, sem af áhuga fyrir þjóð-
arheild vilja beita reynslu sinni við sköp-
un hins nýja mannfélags.
Alþýðan — yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar — getur ráðið ríkinu í krafti
kosningaréttar síns og verður að gera
það, ef hún ekki vill láta troða sig undir.
Hér á íslandi hefur alþýðan einhverj-
ar bestu forsendur, sem til eru í ná-
grannalöndum okkar, til að framkvæma
þessa lífskjarabyltingu, þegar hún ræður
ríkinu og stjórnar því rétt.
I. Ríkið á öll raforkuverin, allar
stærstu verksmiðjur landsins (að álver-
inu undanskildu) og alla aðalbankana,
en allur einkarekstur er þeim háður.
187