Réttur


Réttur - 01.04.1982, Blaðsíða 4

Réttur - 01.04.1982, Blaðsíða 4
urinn 9874 atkvæði. Síðan kom sóknarárið mikla 1978 með 13864 í borgarstjórnarkosn- ingum og 12016 í þingkosningum. Árið eftir er bylgjan farin að hníga og í þingkosningum í desember 1979 eru atkvæðin komin niður í 10888. Borgarmál — Landsmál Borgarstjórnarkosningar í Reykjavík hafa alltaf mótast mjög af stöðu landsmála og alþjóðastjórnmál hafa þar einnig sín áhrif. Það hefur gengið yfir hægri bylgja t.d. hjá grönnum okkar í Noregi og á Bretlandi. Hægri flokkar hafa þar eins og hér komist langt með því að nota töfraorðið skatt- lækkun. Það er talað um óhæfilegar álögur og mikinn rekstrarkostnað. Þegar róttækir flokkar hafa náð ákveðnum árangri í barátt- unni fyrir jöfnuði verður ávinningurinn fljótlega sjálfsagður hlutur sem ekki kemur þeim flokkum til góða í kosningum svo sjá- anlegt sé. Ég nefni sem dæmi hina mikilvægu réttarbót sem felst í fæðingarorlofi fyrir allar konur, bætta þjónustu við börn og aldraða á síðustu árum og sókn í jafnréttisátt fyrir fatlaða, en að þessum málum hefur Alþýðubandalagið unnið dyggilega í ríkisstjórn, á Alþingi og í borgarstjórn. Allt þetta kostar óhjákvæmi- lega aukna skattheimtu og það gefur hægri flokki á borð við Sjálfstæðisflokkinn góðan byr. Sums staðar erlendis hafa hægri flokkar talað af nokkurri hreinskilni um niðurskurð félaglegrar þjónustu um leið og þeir hafa lofað skattalækkunum, en hér komst íhaldið upp með marklaust sparnaðartal. Það átti ekki að draga úr þjónustu, þvert á móti var talað um aukna þjónustu við aldraða og börn jafnhliða skattalækkun. Staða ríkisstjórnarinnar á Alþingi og þar með staða Alþýðubandalagsins var erfið í allan vetur og vandamálin þar entust fram í maí. Efnahagsmálin, Helguvíkurmálið, Blönduvirkjun og stóriðja allt voru þetta erfið mál sem vöktu efasemdir hjá Alþýðu- bandalagsfólki um stöðu og stefnu. Kjaradeilur sem ríki og borg undir forystu Alþýðubandalagsins áttu beina aðild að réðu án efa mjög miklu um úrslit kosninganna. Hjúkrunarfólk stóð í stórorustu við ríki og borg fram á kjördag og mikill kurr var i röð- um annarra hópa opinberra starfsmanna. Á síðastliðnu hausti var samþykkt að fresta alsherjar uppgjöri kjaramála milli ASÍ og VSÍ fram undir vorið. Þar með kom átakspunktur kjarabaráttunnar á versta tima fyrir Alþýðubandalagið sem var í hugum fólks ímynd valdhafans sem hefði átt að bæta kjörin. Fólk var í baráttuskapi gegn valdhafanum. Menn minntust sjálfkrafa baráttunnar fyrir fjórum árum þegar slagorðið var: „Samningana í gildi”, en það þurfti að minna fólk rækilega á að samning- arnir voru settir í gildi fyrir tilstuðlan Alþýðubandalagsins. Óánægja með lága kauptaxta varð enn bitrari þegar kjararann- sóknanefnd dró upp skýra mynd af umfangi yfirborgana á launamarkaðinum. Barátta sterku hópanna sem ná sínu fram með hörðum aðgerðum sem ríki og borg verða undan að láta kyndir að sjálfsögðu einnig undir óánægju hinna sem ekki geta beitt sambærilegum aðferðum. Laun og kaupmáttur tekna ræður mjög miklu um viðhorf manna til flokka við völd. Félagslegt öryggi, sjúkrahjálp og lífeyrir, það eru aðeins hversdagslegar staðreyndir sem mættu vera betri. Alþýðubandalagið boðar jöfnuð manna 68
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.