Réttur - 01.04.1982, Blaðsíða 21
Lít hendur þínar og herra þíns! Sérðu ekki muninn?
Hver hefur lagt þessar götur, steypt þessa veggi?
Hver hefur byggt þessar brýr? Hver reist þessa skóla
börnum okkar til mennta? Seg mér, hver glímdi
við Ægisdætur og hrifsaði úr helgreipum þeirra
hafdjúpsins gull? Hver barðist við drepsóttir, eldgos
og hallœri um rétt sinn til landnáms og lífs í sveitum
landsins okkar? Og hver eru launin?
Pú lítur þau hér. Og hvert sem þú hvarflar sjónum
horfirðu á ógnirnar sömu í bölvaldsins ríki:
Örfáir menn hrifsa arð þinna vinnandi handa,
ógna þér, blekkja þig, skammta þér fátœkt og hungur.
Þeir láta þig myrða þinn bróður og börn hans í stríði.
í brjóst þitt lœða þeir vantrausti á sólina og daginn,
á manninn í sjálfum þér, mátt þinna verkfúsu handa.
Mannvitið óttast þeir, blekking er sverð þeir/a og skjöldur.
Víst stakk hann þér svefnþorn og blindaði augu þín bœði,
ef brögð hans þú skynjaðir, gagnrýndir svik hans og l^gi.
Víst hefur hann krossfest þig, húðstrýkt þig, brennt þig a báli,
ef boðskap sannleikans fluttirðu, glæðandi lífsvon.
Víst hlóð hann danskar hallir úr andlits þíns sveita
og hönd þína sneið hann ef reyndirðu líf þitt að verja.
Víst rekur hann bandarískt erindi á íslenzkum þingstað
og óðul þín selur við dollurum hvar sem þeir bjóðast.
Slíkur er böðull þinn, hann sem þú valdir til herra,
hann sem vill dagsljósið feigt eins og lífsvonir okkar.
Hví seldirðu honum í hendur fjöregg þitt: drauminn
um hamingju, frelsi og brœðralag mannanna á jörðu?
Hann sneri því gegn þér, sem vopni og villti þér sjónir.
Hann véfengir heilagan rétt þinn til íslenzkrar moldar.
Hann misþyrmir gróðri lands þíns með hermannahælum.
Helsprengjuregn verður gjöf hans til barnanna þinna.
85