Réttur - 01.04.1982, Blaðsíða 36
Bjarna var minnst af samherjum og vinum í Þjóðviljanum 29. maí og sama
dag í blaðinu Austurlandi, en því blaði hafði Bjarni ritstýrt í nærri 30 ár.
Réttur vill minnast Bjarna Þórðarsonar sem eins af bestu baráttumönnum
íslenskra sósialista. Bjarni var ekki aðeins forystumaður í sinni heimabyggð;
hann var foringi, sem sósialistar um allt land virtu og dáðu. Hér verða tilfærð
nokkur ummæli samherja Bjarna, sem fram komu í minningargreinum um
hann:
Jóhannes Stefánsson samstarfsmaður
Bjarna allan hans starfstíma í Nesk-
aupstað segir m.a:
Náið samstarf um hálfrar aldar skeið kallar fram
ótal minningar um félaga og vin.
Hugsjónir sósíalismans, þrotlaus vinna og hörð
barátta skiluðu samtíðinni árangursríku ævistarfi
Bjarna Þórðarsonar.
Bjarni Steindór Þórðarson var fæddur 24. apríl
1914 að Kálfafelli í Suðursveit A-Skaftafellssýslu.
Foreldrar hans voru: Þórður Bergsveinsson,
útvegsbóndi að Krossi á Berufjarðarströnd og
Jóhanna Matthildur Bjarnadóttir.
Þórður var sonur Bergsveins Skúlasonar, sem bjó
að Urðarteigi en lést að Krossi 97 ára gamall.
Skúlaættin er rakin til Skúla Sigfússonar, sem bjó í
Sandvík í Norðfjarðarhreppi og var fæddur 1723.
Kona Bergsveins var Sigríður Þórðardóttir frá
Flugustöðum í Álftafirði S.-Múlasýslu.
Faðir Matthildar var Bjarni Runólfsson frá Heiði
í Kirkjubæjarhreppi V.-Skaftafellssýslu. Móðir
hennar var Steinunn Jónsdóttir frá Hátúnum í
Kirkjubæjarhreppi. Móðurætt Bjarna er því úr
Skaftafellssýslu.
Skúlaættin var stór og margir af þeirri ætt hér í
Norðfirði.
Bjarni hélt mikið upp á Bergsvein afa sinn, sem
var nokkuð sérlundaður en merkismaður. Átti
Bjarni fjölda skyldmenna hér, en hann var ættfróður
og gerði talsvert af því að rekja ættir manna.
Foreldar Bjarna fluttu að Krossi á Berufjarðar-
strönd, þegar hann var kornabarn og stundaði faðir
hans þar sjóinn ásamt landbúskap. 19. september
1925 fórst Þórður ásamt 4 mönnum öðrum skammt
frá landi á Krossi. Voru þeir að koma frá skeljatöku.
Ekkert var hægt að gera þeim til bjargar, en
heimilisfólkið að Krossi varð vitni að þessum
sorglega atburði.
Matthildur var orðin ekkja með 4 börn og bar
það fimmta undir belti. Bjarni var elstur, 11 ára,
og hafði þá misst föður sinn sem var aðeins 34 ára
gamall.
Matthildur var einstök dugnaðarkona og einsetti
sér að halda heimilinu saman þrátt fyrir mikla
fátækt. Var þá siður að tvístra heimilum og var lagt
að henni að koma börnunum í fóstur.
Loksins eftir 5 ára búskap hennar á Krossi gafst
hún þar upp og flutti 1930 til Neskaupstaðar. Voru
allar eignir búsins seldar á uppboði og engu þyrmt,
jafnvel íslendingasögurnar fóru undir hamarinn.
Sigurður bróðir Matthildar var búsettur á Norðfirði
og var Bjarni hjá honum og Guðlaugu konu hans
veturinn 1929 til 1930, þar sem hann settist í
unglingaskólann hér.
Einnig var hann næsta vetur í skólanum og var
það öll hans skólaganga. Það varð hlutskipti Bjarna,
sem var elstur þeirra systkina, að vera aðalfyrirvinna
heimilisins en öll fóru þau systkin snemma að vinna
og heimilinu var haldið gangandi.
Lúðvík Jósepsson segir í
minningargrein sinni um Bjarna:
Það er vissulega sjónarsviptir, þegar persónur af
gerð Bjarna Þórðarsonar hverfa af sviðinu, en
100