Réttur - 01.04.1982, Blaðsíða 60
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ: I Ijósi þess að
þjóðartekjur dragast saman á næstu misserum ef að
líkum lætur, má teljast gott að með þesssum samn-
ingi tekst að viðhalda kaupmætti ársins 1981 óskert-
um. Þessi mynd var tekin við upphaf 72 manna nefnd-
arfundarins. Björn Þórhallson varaforseti ASÍ ræðir við
Ásmund. Ljósm.: — gel.
þrep, er miðist við 6 ára starf í sömu
starfsgrein, þar af tvö síðustu árin hjá
sama atvinnurekanda, og verði þá laun
12,5% hærri en byrjunarlaun viðkomandi
launaflokks.
Ákvæðisvinnutaxtar skulu taka sömu
hlutfallslegu breytingum og tímavinnu-
taxtar eftir fyrstu starfsaldurshækkun.
Samningurinn tekur þó ekki til síldarsölt-
unarsamninga.
Verðbætur á laun skal greiða sam-
kvæmt ákvæðum Ólafslaga en þó skal sér-
staklega draga 2,9% frá útreikningi verð-
bótavísitölu 1. september 1982. Umræð-
um við ríkisstjórnina um nýjan vísitölu-
grundvöll skal haldið áfram.
*
Ummæli forseta ASI
Eftir að samkomulag náðist lét Ás-
mundur Stefánsson eftirfarandi ummæli
falla í viðtali við Þjóðviljann:
„Ef borin er saman sú kröfugerð sem
við lögðum fram sl. haust og sá samning-
ur sem nú liggur fyrir, er alveg augljóst
að töluvert vantar upp á að allt hafi náðst
fram. Það sem hins vegar skiptir mestu
er að það tekst með þessum samningi að
viðhalda meðaltalskaupmætti ársins
1981“, sagði Ásmundur Stefánsson forseti
Alþýðusambands Islands eftir að fundi
72 manna nefndar ASÍ lauk.
„Sé þessi árangur skoðaður í ljósi þess
að allar spár um framvindu efnahagsmála
undanfarið benda til þess að þjóðartekjur
dragist saman, er ljóst að þessi samningur
eykur hlut verkafólks og miðar að því að
styrkja okkar hlut frá fyrri stöðu“.
Þú telur sum sé að samningur ykkar
við vinnuveitendur sé viðunandi?
„Já, ég tel hiklaust að svo sé. Meiri
kauphækkun eða betra vísitölukerfi hefði
ekki náðst fram nema með miklum átök-
um á vinnumarkaðnum. Ég er sammála
liðsmönnum okkar hreyfingar um að mikil
átök til að ná fram betri samningi hefðu
verið of dýru verði keypt“.
En hvað með vísitöluskerðinguna sem
nú er samið um að verði 2,9% 1. septem-
ber í haust?
124