Réttur


Réttur - 01.04.1982, Síða 57

Réttur - 01.04.1982, Síða 57
á, eru of tíð til þess að útiloka möguleikann á þessu morði, sem kom Nato og Bandaríkja- auðvaldinu vel. Aðvörun frá Venus í fornöld gáfu stjörnuspekingar næsta ná- granna okkar í sólkerfinu hið fagra nafn Venusar, ástar- og fegurðargyðjunnar. Nú hafa vísindamenn uppgötvað að Venus er eldglóandi hnöttur, — rétt eins og atom- sprengingar hefðu tortímt þar öllu í eldi, sem eigi slokknar. Bíða jarðarinnar sömu örlög. Ronald Reagan og „stóriðju- og hernaðar-samsteypa” Bandaríkjanna búa jarðarbúum slík örlög með vitfirrtu vígbúnaðaræði sínu. Ekkert fær stöðvað þá enn, þeir græða svo vel á því! Er ekki tími til kominn að taka fram fyrir hendurnar á þessum „stórkaupmönnum dauðans”, þessum hýenum gróðans, — áður en þeir búa jarðarbúum örlög Venusar, — gera jörðina að einu eldhafi. Þeir hófu að brenna hundruð þúsunda manna í „smá- muna”stíl í Hiroshima og Nagasaki. — Er ekki mál að linni áður en það er orðið of seint? Hafréttarsamningurinn og Bandaríkin Bandaríkjastjórn hefur neitað að skrifa undir alþjóðasamning Sameinuðu þjóðanna um hafréttin. Höfuðástæðan er að hræ- gammarnir í Wall Street og Washington, rík- ustu auðfurstar heims, vilja tryggja sér svo að segja einkarétt á málmum dýpsta hafs- botnsins, sem Sameinuðu þjóðirnar í hafrétt- arsáttmálanum ætluðust til að yrðu notaðir til að bæta úr fátækt allra fátækustu þjóða heims, — sem sé væru alþjóðaeign. Þessir ríkustu auðhringir heims, helteknir af gróðafíkn og gersnauðir af mannúðar — eða réttlætistilfinningu, ætla í krafti tækni sinnar að ræna þessum auð frá fátækustu þjóðum heims. Bandaríkjastjórn, verkfæri þessara níð- inga, á skilið fordæmingu alls mannkyns fyrir þennan níðingsskap. En eins og við var að búast, þá liggja flest blöð hér heima og stjórnmálaræflar Nato hundflatir fyrir þessari stjórn, sem þykist vera foringi lýðfrelsis í heiminum í krafti þess að geta drepið allt mannkyn, ef henni byði svo við að horfa. Það eru vissulega engin takmörk fyrir þeim svívirðingum gagnvart fátækum, sem morðingjarnir, er myrtu 2 milljónir kvenna, barna og karlmanna í Vietnam, geta gert sig seka um. 121

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.