Réttur - 01.04.1982, Blaðsíða 14
,,Menn spyrja, livort mannkynið sé ekki á pófiri leió meó að drukkna i sínu eipin sorpi."
Fyrr í þessu erindi nefndi ég 20. öldina öld
heimsvaldastefnunnar. Það er því ekki úr
vegi að víkja að því hvers konar mannlífi er
lifað í skugga heimsvaldastefnunnar.
Mannlíf í neyslusamfélögum:
I norðri lifa íbúar Vesturlanda í stöðugri
eftirsókn eftir meiri lífsþægindum og hag-
vexti, sem er forsenda meiri sóunar. Þar
blasir við mannlif i steinsteyptum og malbik-
uðum stórborgum þar sem ógn mengunar og
firringar fjarlægir manninn fögru mannlífi.
Keppimarkið verður sifellt kapphlaup eftir
þörfum eða gerfiþörfum og sívaxandi vöru-
framleiðsla gengur á náttúruauðlindir ellegar
Á hverri mínútu er 1 miljón $ eða
11 miljónum íslenskra króna varið
til herútgjalda í heiminum, en í
þessum sama heimi deyja daglega
40.000 börn úr hungri og vannær-
ingu, ” sagði framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna er hann setti
Afvopnunarráðstefnu samtakanna
í vor.
spillir þeim. Þar spyrja menn sig hvort
mannkynið sé að drukkna í eigin sorpi. Jafn-
framt ríkir lífsþægindagræðgi er veldur
streitu í hinu miskunnarlausa markaðsþjóð-
félagi Vesturlanda.
Mannlíf á mörkum hungurdauðans
í þróunarlöndunum blasir hins vegar við
hungur og vannæring, auk minnkandi mat-
vælaframleiðslu. Það hefur verið áætlað að
um 200 milljón barna 5 ára og yngri, um
helmingur barna í þróunarlöndunum, séu
vannærð. Um 70°/o íbúa jarðar búa í þró-
unarlöndunum, en ibúar jarðar eru um 4,5
milljarðar. 14. milljónir barna deyja árlega úr
hungri og 400 milljónir manna þjást af
stöðugri vannæringu. Alvarlegast er þó að
bilið milli ríkra þjóða og snauðra breikkar
stöðugt. Slík er örbirgð þriðja heimsins á
sama tíma og líkframleiðsluiðnaðurinn ver
sífellt hærri fjárhæðum til tortímingar.
Glæpur gagnvart mannkyni:
Þegar litið er á hinar hrópandi andstæður
auðs og örbirgðar í veröldinni, þá flokkast
sóunin til hernaðar undir siðleysi eða glæp
78