Réttur - 01.04.1982, Page 43
Athugum nokkrar tölur um vígbúnað-
inn.
Fjárhagsárið 1981 voru hernaðarút-
gjöld Bandaríkjanna á fjárlögum 182
milljarðar dollara — eða meir en hernað-
arútgjöld allra þróaðra þjóða auðvalds-
ríkja og sósíalísku ríkjanna til samans.'
Bandaríkin hafa 5% af íbúum jarðar, en
auðmannastétt þeirra hefur sett sér það
mark að drottna yfir öllum öðrum
þjóðum heims í krafti auðs og vopna-
valds.
Núverandi forseti, Ronald Reagan,
stefnir út í brjálaðan vígbúnað til þess að
reyna að ná þessu þokkalega takmarki.
Hernaðarútgjöld Bandaríkjanna, sem
voru 13 milljarðar dollara 1950, eiga að
verða 230 milljarðar dollara, ef hann og
auðmannaklíkan bak við hann fá að
ráða. í kosningastefnuskrá hans var
jafnvel stefnt í áttina að 400 milljörðum
dollara. „Réttur" hefur áður skýrt frá
ofsagróða þeirra auðhringa, er framleiða
þessi manndráps- og valda-tæki. Alls er
nú talið að mannkynið verji 600 milljörð-
um dollara á ári í vígbúnað.
Jafnframt hafa auðhringar Bandaríkj-
anna aukið í sífellu gróða sinn af
fjárfestingu í Vestur-Evrópu og í raun-
verulegum nýlendum eins og Suður-
Kóreu og fleiri slíkum löndum, sem
Bandaríkin raunverulega leggja undir
sig. — Þessi gróði bandarísku auðhring-
anna var 1960 5 milljarðar dollara, —
orðinn 14 milljarðar dollara 1970 og um
það bil 80 milljarðar dollara 1980. Allur
þessi gróði rennur skattfrjáls til auðfélag-
anna, — en hinsvegar greiða Bandaríkin
í ár af fé skattborgaranna 250 milljarða
dollara í hernaðarútgjöld, „utanlands-
hjálp“ (þ.e. mútur og kostnað við að
hafa völd í þessum löndum), vexti af
stríðsskuldum fyrri ára og greiðslur til
gamalla hermanna — til þess að auð-
hringirnir geti grætt sína 80 milljarða og
notið þeirra einir!
Það er til nóg fé í heiminum ti þess að
útrýma hungri,, fátækt, fáfræði og öðru
böli mannkynsins. En til þess að ná valdi
yfir þessu fé verður alþýða heims að taka
höndum saman og taka völdin af auðvald-
inu hver í sínu landi. En þar sem auð-
mannastéttir flestallra auðvaldsríkja og
raunverulegra „nýlendna“ Bandaríkj-
anna eru bundnar á klafa bandaríska
auðvaldsins, verður alþýða heimsins að
gera sér ljóst að einmitt bandaríska
milljónavaldið er höfuðóvinur hennar og
orsök eymdar hundraða milljóna manna,
og því verður það lífsnauðsyn mannkyns-
ins að sigra þetta auðvald — en án stríðs,
— heldur með því að vekja fjöldann af
jarðarbúum til meðvitundar um að líf
mannkynsins velti á því að þetta ógnar-
vald sé endanlega brotið á bak aftur. —
Og það er ekki óhugsandi, því banda-
ríska þjóðin er sjálf að byrja að rísa upp
gegn því vitfirringsvaldi, sem ella leiðir
mannkynið til glötunar.
SKÝRINGAR:
1. Ameríski hagfræðingurinn Victor Perlo gerir
mjög ýtarlega grein fyrir þessum aðstæðum í
þýska ritinu „Einheit", 8. hefti 1981, bls. 829-
834. Mjög ýtarlegar tölur um hinn gríðarlega
gróða fjölþjóðahringanna má finna í tímaritinu
„Probleme des Fridens und des Sozialismus"
4. hefti 1982, bls. 512 - 521.
107