Réttur


Réttur - 01.04.1982, Page 46

Réttur - 01.04.1982, Page 46
Ræða Steinunnar Jóhannesdóttur á útifundi herstöðvaandstæðinga 30. mars Friður vopnavaldsins er friður dauðans Félagar. Samherjar. Aðrir sem til mín heyra. Ég stend ekki hér í dag til að segja neitt nýtt. Ég stend ekki hér til að tala um það, sem þið hafið heyrt áður, ég stend til að segja það sama og hundruð og þusund miljónir manna hafa sagt á undan mér og eiga eftir að segja, að ég skelfist tilhugsunina um stríð og biðji um frið. Einu sinni á ári eru jól, einu sinni á ári eru páskar, einu sinni á ári er sautjándi júní, einu sinni á ári er 30. mars. Allt eru það dag- ar, sem menn minnast, af því þá gerðust tíðindi, sem skiptu sköpum fyrir marga. Síð- an gleðjast þeir eða hryggjast árlega upp frá því. í dag er 30. mars, og við erum hér saman komin til að hryggjast. Til að hryggjast yfir því að 30. mars 1949 var samþykkt á Alþingi íslendinga að farga nýyfirlýstu ævarandi hlutleysi hins unga lýðveldis og ganga í hern- aðarbandalagið Nató. Inni í þessu gráa grjóti ákváðu 37 þingmenn Sjálfstæðisflokks, Al- þýðuflokks og Framsóknarflokks að láta undan þrýstingi Bandaríkjastjórnar og narra þjóðina vopnlausa til þáttöku í voldugasta hernaðarbandalagi heimsins. Varsjárbanda- lagið varð ekki til fyrr en sex árum síðar sem svar. Gegn þessu greiddu atkvæði 10 þing- menn Sósíalistaflokksins, tveir Alþýðu- flokksmenn og einn Framsóknarmaður, en tveir sátu hjá. Tillaga um að leggja málið í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu var felld. Meirihluti íslenskra þingmanna var jafn hræddur við þjóðviljann þá og meiri hluti spænskra þingmanna nú þegar svipuð átök eiga sér stað þar í Iandi vegna inngöngu Steinunn Jóhannesdóttir 110

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.