Réttur


Réttur - 01.04.1982, Page 56

Réttur - 01.04.1982, Page 56
ERLEND VlÐSJA Lét CIA myrða Aldo Moro? ,,Getto” í Beirut? Það er hart að sjá hvernig þeir trúarof- stækismenn Gyðinga, sem nú hafa þar enn völdin, beita svipuðum aðferðum gagnvart Palestínumönnum og nasistar beittu gagn- vart Gyðingum. Hótun Begins um „eyðingu” P.L.O.-manna í vesturhluta Beirut, minnir mann á aðfarir nasista við Getto-ið í Varsjá. — Með þessu ofstæki er verið að spilla þeirri samúð, sem Gyðingar nutu fyrir stríð. Og einmitt sú samúð varð til þess að Ísraelsríki var stofnað af Sameinuðu þjóðunum. En þá var og ákveðið að Palestínumenn skyldu fá sitt eigið ríki við hliðina, — en það hefur ekki fengist fram. Það var miklu eðlilegra ástand í þessum efnum meðan trúlaus Gyðingur eins og Golda Mayer hafði áhrif og völd í ísrael. En best hefur þó Kommúnistaflokkur ísraels undir forystu Gyðingsins Meir Vilner sýnt hvernig Gyðingar og Arabar geta unnið sam- an í bróðerni í sama flokki, sem hefur á þingi bæði Gyðinga og Araba saman. Og saman ganga þeir hver í sínum þjóðbúningi 1. maí. Þeir, sem kalla sig kristna, mættu nokkuð af þeim læra í þessum efnum. Kommúnista- flokkurinn hefur meirihluta í Nasaret og er Arabi borgarstjóri, er tekur þar virðulega á móti kristnum mönnum. En Nato-dótið segir máske bara: Getur nokkuð gott komið frá Nasaret? Aldo Moro, formaður kristilega demo- krataflokksins á Ítalíu, var sem kunnugt er myrtur fyrir 4 árum. ,,Rauðu herdeildirnar” svokölluðu eru ákærðar fyrir það morð og fleiri. Málaferlin standa árum saman. En hver stóð á bak við morðið? Aldo Moro var hlynntur því að flokkur hans tæki upp samstarf um ríkisstjórn við kommúnista. Eleonora Moro, ekkja hans, hélt því fram við rannsóknarnefnd þingsins á morðinu að maður hennar hefði orðið fórn- arlamb alþjóðlegs samsæris vegna þessarar pólitísku afstöðu sinnar. Hún sagði að í síð- ustu Ameríkuferð hans, hálfu ári áður en honum var rænt, hefði hann fengið aðvaran- ir frá „æðstu stöðum” vegna þessara vinstri tilhneiginga, því ella ,,yrði honum þessi pólitík dýr”. Áleit ekkjan að rikisstjórn Ítalíu væri á vissan hátt ábyrg, því hún hefði neitað flokksformanni sínum um brynvarða bifreið og flokkurinn ekkert gert til að kaupa lif hans. Grunur liggur á að CIA, — leyniþjónusta Bandaríkjanna, standi á bak við morð þetta, eins og hótunin vestra gefur til kynna — og ekki þarf að spyrja um samband hennar við ítalska íhaldsflokkinn (CD) og „rauðu her- deildina”. Pólitísk morð CIA á póiitískum foringj- um, sem Bandaríkjastjórn hefur vanþóknun 120

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.